A4
A4
A4

A4 Skeifan – Erum við að leita að þér?

A4 Skeifan óskar eftir að ráða kraftmikinn sölufulltrúa til starfa. Um er að ræða hlutastarf þar sem unnið er mánudaga 16:00 til 20:00, laugardaga og sunnudaga frá 12:00 – 18:00 aðra hvora viku. Helstu verkefni sölufulltrúa er að veita viðskiptavinum góða þjónustu og ráðgjöf, afgreiðsla á kassa, fylla á vörur sem og framstillingar í búðinni.

Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða samkvæmt nánara samkomulagi.

Helstu verkefni:

  • Sala, ráðgjöf og framúrskarandi þjónusta við viðskiptavini verslunarinnar
  • Áfyllingar, framstillingar, móttaka á vörum og afgreiðsla á kassa
  • Önnur almenn verslunarstörf

Hæfniskröfur og reynsla:

  • Reynsla af sölu- og verslunarstörfum
  • Framúrskarandi þjónustulund og áhugi á sölustörfum
  • Sjálfstæði og frumkvæði í starfi
  • Snyrtimennska og auga fyrir framstillingu vara.
  • Sveigjanleiki og geta til að vinna undir álagi
  • Góð samskiptahæfni, kurteisi og jákvæðni
  • Þekking á hannyrðu
  • Íslenskukunnátta
  • 18 ára aldurstakmark

Umsóknarfrestur er til og með 11 júlí 2026.

Nánari upplýsingar um starfið veitir verslunarstjórinn Sigurborg í síma 773-0009.

A4 er framsækið fyrirtæki og leggur metnað sinn í að vera í fararbroddi á sviði húsgagna, skrifstofu-, skóla-, föndur- og hannyrðavara og leggur áherslu á góða og trausta þjónustu við viðskiptavini. Við erum stolt af því að geta boðið upp á heimsþekkt vörumerki sem eiga það öll sameiginlegt að vera í háum gæðaflokki. Hjá fyrirtækinu starfa um 130 manns.

Auglýsing birt1. júlí 2026
Umsóknarfrestur11. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Skeifan 17, 108 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar