Sölufulltrúi
Hefur þú áhuga á að aðstoða fólk við að gera sér fallegt og þægilegt heimili, hjálpa því að velja sjálfbærari kosti og einfalda líf sitt?
Gakktu til liðs við frábæra söluteymið okkar þar sem þér gefst kostur á að þróast og vaxa í starfi. Um fullt starf að ræða á 2-2-3 vöktum, fullt starf alla virka daga og hlutastarf. Vinnutími 2-2-3 vaktaplans er frá kl. 11-20, vinnutími alla virka daga er frá 10-18 og vinnutími hlutastarfs er aðra hverja helgi frá 11-20 og 1-2 virkir dagar í viku frá 16-20
Starfið felst í að veita viðskiptavinum verslunarinnar þjónustu og aðstoð, halda útliti verslunarinnar söluhvetjandi og snyrtilegu ásamt því að tryggja það að vörur deildarinnar séu rétt verðmerktar, áfyllingar og ýmis tilfallandi verkefni.
- Söluhæfileikar
- Jákvæðni og dugnaður
- Sjálfstæð vinnubrögð
- Samviskusemi og drifkraftur
- Góð og rík þjónustulund
- Áhugi á hönnun og húsbúnaði
- Almenn tölvuþekking
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði
Starfinu fylgir ýmis fríðindi eins og samgöngustyrkur, starfsmannaafslættir, góður hádegismatur á frábærum kjörum, skemmtilegir samstarfsfélagar og fleira.