Advise Business Monitor
Advise, er íslensk hugbúnaðarlausn á sviði viðskiptagreindar, sniðin að þörfum stjórnenda og hagsmunaaðila fyrirtækja. Lausnin veitir fyrirtækjum yfirsýn og innsýn í reksturinn á einfaldan hátt, sparar tíma og fyrirhöfn stjórnenda með því að veita rauntíma innsýn í reksturinn. Advise er mótað að rekstri fyrirtækja en innifelur einnig forsniðnar greiningar. Lausnin okkar veitir aukið aðhald og skipulag í rekstri fyrirtækja, bætir skilvirkni og upplýsingagjöf og er lykill að í gagnadrifinni ákvarðanatöku í rekstri.
Sölu- og markaðsstjóri Advise
Advise er hugbúnaðarfyrirtæki í vexti og með háleit markmið. Við leitum að einstaklingi með reynslu og drifkraft til að leiða sölu- og markaðsstarf fyrirtækisins.
Sem sölu- og markaðsstjóri berð þú ábyrgð á þróun og framkvæmd markaðs- og söluáætlana sem stuðla að árangri fyrirtækisins. Þú verður hluti af sterku teymi með metnað fyrir framúrskarandi tækni og þjónustu og hefur tækifæri á að hafa áhrif á stefnu og árangur fyrirtækis í vexti.
Helstu verkefni og ábyrgð
-
Þróa og framkvæma stefnu sem byggir sterkt vörumerki og eykur vitund um vöru okkar á B2B markaði
-
Koma á fót og rækta viðskiptasambönd við fyrirtæki og stjórnendur
- Stjórna söluferli, frá myndun tækifæra að lokun samninga
- Samstarf við þjónustu- og þróunarteymi til að tryggja að viðskiptavinir fái bestu mögulegu lausnina
Menntunar- og hæfniskröfur
Við leitum að aðila með:
- Menntun á sviði viðskipta, markaðsfræði eða sambærilegs sviðs.
- Þekking á sölu og markaðssetningu í B2B umhverfi
- Greiningarhæfni til að finna tækifæri og taka ákvarðanir byggðar á gögnum
- Hæfni til að leiða fólk og ferla
-
Samskiptahæfni í ræðu og riti
-
Þekking og reynsla á CRM, fjármálagögnum og hugbúnaðarlausnum er kostur
-
Framúrskarandi færni í íslensku og ensku
Auglýsing birt22. september 2024
Umsóknarfrestur13. október 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaFramúrskarandi
EnskaFramúrskarandi
Staðsetning
Hlíðasmári 6, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar