

Smíðavöllur - Frístundaleiðbeinandi
Frístundaleiðbeinandi hefur umsjón með þátttöku og leiðsögn í hópastarfi á Smíðavöllum. Hann vinnur í anda lýðræðis á námskeiðinu og vinnur markvisst að því að auka sjálfstæði, ábyrgð og virkni þeirra sem taka þátt í starfinu. Smíðavellir eru fyrir börn á aldrinum 9 til 12 ára og eru með aðstöðu við Smáraskóla.
Smíðavellir eru opnir frá kl. 10:00 – 15:00 virka daga á meðan á námskeiðinu stendur.
Vinnutími er frá kl. 08:00 - 16:00.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.
Æskilegt að umsækjendur séu á 20. aldursári.
Starfstímabil er frá 7. júní – 27. júlí 2021.
Samkvæmt lögum verða umsækjendur sem eru ráðnir að skrifa undir heimild til upplýsingaöflunar úr sakaskrá.
Nánari upplýsingar veitir Amanda K. Ólafsdóttir deildarstjóri frístundadeildar, sími 441 0000.











