Bergrisinn bs.
Bergrisinn bs.
Bergrisinn bs.

Skrifstofustjóri Bergrisans

Bergrisinn bs. auglýsir eftir skrifstofustjóra í fullt starf. Skrifstofustjóri er ný staða hjá Bergrisanum og er tilkomin vegna aukinna umsvifa undanfarin ár ásamt auknum kröfum um uppbyggingu í málaflokki fatlaðs fólks. Með ráðningu skrifstofustjóra er verið að styrkja miðlæga stjórn Bergrisans ásamt því að stuðla að þverfaglegu samstarfi við stefnumótun og uppbyggingu þjónustuúrræða. Leitað er að reynslumiklum einstaklingi sem hefur góða hæfni í að vinna sjálfstætt og metnað til að móta nýja stöðu skrifstofustjóra. Starfið er án staðsetningar.

Bergrisinn bs. er byggðasamlag 13 sveitarfélaga um málefni fatlaðs fólks á Suðurlandi. Aðildarsveitarfélögin fela Bergrisanum skipulag og framkvæmd á þjónustu við fatlað fólk á starfssvæði Bergrisans. Hlutverk Bergrisans er að móta stefnu um þjónustu við fatlað fólk, veita ráðgjöf og hafa eftirlit með framkvæmd þjónustunnar og umsýslu þeirra fjármuna sem ætlaðir eru til rekstur málaflokksins. Meðal þeirra úrræða sem eru innan þjónustusvæða Bergrisans eru: VISS, vinnu- og hæfingarstöð á Selfossi ásamt útibúum í Þorlákshöfn, á Hvolsvelli og Flúðum. Skammtímadvöl, heimili fyrir börn og fyrir 18 ára og eldri með fötlun, Sólheimar og Skaftholt.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Daglegur rekstur og stjórnsýsla Bergrisans, s.s. bókhald og laun, skýrslugerðir og úttektir
  • Fjárstýring, gerð fjárhagsáætlana og þátttaka í gerð ársreikninga
  • Eftirlit með innkomu tekna og yfirsýn yfir útgjöld
  • Eftirlit með fjárhag og rekstri þeirra þjónustuúrræða sem heyra undir Bergrisann
  • Stefnumótun í tengslum við þjónustuúrræði
  • Fjárhagsleg þátttaka í rekstri þjónustusamninga við einkaaðila
  • Stýring uppbyggingarverkefna

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólagráða sem nýtist í starfi
  • Reynsla af fjárstýringu
  • Reynsla af gerð fjárhagsáætlana og skýrslugerð
  • Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu
  • Reynsla af gerð ársreikninga er kostur
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og skipulagshæfileikar
  • Mjög góð íslenskukunnátta
Auglýsing birt24. nóvember 2023
Umsóknarfrestur11. desember 2023
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁrsreikningarPathCreated with Sketch.FjárhagsáætlanagerðPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Opinber stjórnsýslaPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Skýrslur
Starfsgreinar
Starfsmerkingar