Fagtækni
Fagtækni

Skrifstofustjóri

Fagtækni hf. óskar eftir að ráða reynslumikinn einstakling í starf skrifstofustjóra á skrifstofu fyrirtækisins miðsvæðis í Kópavogi. Um er að ræða fjölbreytt starf þar sem viðkomandi tekur virkan þátt í daglegum rekstri fyrirtækisins. Leitað er að jákvæðum, nákvæmum og skipulögðum einstaklingi sem tekur frumkvæði og tryggir faglega umsýslu og hnökralausan rekstur skrifstofunnar.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Yfirumsjón með bókhaldi og fjármálum fyrirtækisins
  • Umsjón með daglegum rekstri skrifstofu
  • Umsjón með launavinnslu
  • Færsla og afstemming bókhalds
  • Umsjón með verkbókhaldi og tímaskráningu starfsmanna
  • Yfirsýn og eftirfylgni með útsendum reikningum
  • Umsjón með efni á heimasíðu og samfélagsmiðlum
  • Upplýsingamiðlun til framkvæmdastjóra og stjórn fyrirtækisins
  • Skilagreinar til opinbera aðila og skil til endurskoðanda

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Menntun sem nýtist í starfi
  • Góð haldbær reynsla af bókhaldi og launavinnslu er skilyrði
  • Haldbær reynsla á notkun bókhaldskerfa á borð við DK eða Navision
  • Góð tölvukunnátta og greiningarhæfni
  • Gott vald á íslensku í ræðu og riti
  • Frumkvæði og drifkraftur
  • Sjálfstæði og góð samskiptahæfni
  • Nákvæm og skipulögð vinnubrögð

Um Fagtækni hf.:
Fagtækni hf. er sérhæft tæknifyrirtæki í hönnun og uppsetningu tækni- og rafmagnskerfa fyrir fyrirtæki og stofnanir. Frá upphafi hefur Fagtækni verið leiðandi á sviði rafmagnskerfa á Íslandi. Fagtækni tekur einnig að sér heildarverkefni sem aðalverktaki, þar sem raf- og tæknikerfi eru lykilhlutar stærri framkvæmdaverka. Fagtækni leggur áherslu á áreiðanleika, fagmennsku og framúrskarandi þjónustu við viðskiptavini. Fagtækni fagnaði á síðasta ári 30 ára farsælum ferli sem starfsfólk lítur stolt til baka á, en er enn spenntara fyrir framtíðinni.

Umsóknarfrestur er til og með 12. apríl nk. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir aðilar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.

Frekari upplýsingar veita Sigríður Svava Sandholt ([email protected]) og Þuríður Pétursdóttir ([email protected]) í síma 511-1225

Auglýsing birt25. mars 2026
Umsóknarfrestur12. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Akralind 6, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar