Sveitarfélagið Skagafjörður
Sveitarfélagið Skagafjörður

Skólastjóri Tónlistarskóla Skagafjarðar

Staða skólastjóra Tónlistarskóla Skagafjarðar er laus til umsóknar. Óskað er eftir stjórnanda sem hefur metnað og býr yfir hæfni til að skipuleggja krefjandi og framsækið skólastarf í samvinnu við starfsfólk, foreldra og nemendur. Skólastjóri þarf að hafa sterka sýn á faglega þróun innra starfs skólans ásamt því að styrkja stöðu hans í nærumhverfinu með markvissu samstarfi við aðrar mennta- og menningarstofnanir. Um fullt starf er að ræða með kennsluskyldu og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Kennsla í hljóðfæraleik fer fram á grunn-, mið- og framhaldsstigi.

Tónlistarskóli Skagafjarðar sinnir tónlistarkennslu í öllum Skagafirði; Sauðárkróki, Varmahlíð og Hofsósi. Kennsla fer fram innan grunnskólanna. Markmið skólans er að veita faglega menntun og þjálfun og vinna að eflingu tónlistarlífs. Tónlistarskólinn stuðlar að skapandi umhverfi og opnar tækifæri fyrir nemendur til þess að nýta tónlist með fjölbreyttum hætti í lífi og starfi.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Veitir tónlistarskólanum faglega forstöðu á sviði tónlistarkennslu.
  • Tekur virkan þátt í þróun og skipulagi skólastarfsins og á í samvinnu við sambærilegar stofnanir.
  • Stýrir og ber ábyrgð á rekstri og daglegri starfsemi skólans, þ.m.t. mannauðsmálum.
  • Forysta í mótun og eftirfylgni með stefnu skólans.
  • Leiðir og hvetur starfsfólk áfram með það að markmiði að tryggja sem best samskipti og gagnkvæmt traust.
  • Sinnir kennslu á sínu sviði.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Tónlistarkennaramenntun eða haldbær tónlistarmenntun sem nýtist í starfi.
  • Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar er æskileg.
  • Reynsla af stjórnun og/eða faglegri forystu á sviði kennslu og þróunar í skólum.
  • Þekking og reynsla af rekstri og stjórnun innan opinberrar stjórnsýslu er æskileg.
  • Kennslureynsla í tónlistarskóla.
  • Leiðtogahæfileikar, metnaður og frumkvæði.
  • Áhugi á skólaþróun og nýjungum.
  • Góð kunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku.
  • Góð almenn tölvukunnátta.
  • Framúrskarandi samskiptahæfni og jákvætt viðmót.

Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Samnings íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Thelma Kristín Kvaran ([email protected]) í síma 511 1225.

Einungis er tekið við rafrænum umsóknum á heimasíðu sveitarfélagsins (laus störf) Skólastjóri Tónlistarskóla Skagafjarðar - 50skills. Með umsókn skal fylgja kynningarbréf þar sem í stuttu og kjarnyrtu máli er gert grein fyrir hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi, ferilskrá og afrit af prófskírteinum.

Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Auglýsing birt15. júlí 2025
Umsóknarfrestur5. ágúst 2025
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Skagfirðingabraut 143715, 550 Sauðárkrókur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.KennslaPathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.NýjungagirniPathCreated with Sketch.Opinber stjórnsýslaPathCreated with Sketch.Verkefnastjórnun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar