Borgarbyggð
Borgarbyggð
Borgarbyggð

Skólaliði eða þrif á Varmalandi

Grunnskóli Borgarfjarðar auglýsir eftir skólaliða við Varmalandsdeild skólans. Um er að ræða 80% stöðu með vinnutíma 8:15-14:15 fram til 8. júní.

Ef ekki fæst skólaliði kemur til greina að ráða bara í þrif. Þá getur vinnutími verið eftir að skóla lýkur og starfshlutfall um 40%

Skólinn vinnur eftir gildum heilsueflingar og grænfána og er leiðtogaskóli. Nánar um stefnu skólans er á heimasíðunni www.gbf.is Skólaliði tekur þátt í uppeldisstarfi og öðrum störfum sem fram fara innan skólans. Megin áhersla er lögð á velferð og vellíðan nemenda.

Við hvetjum áhugasama um að sækja um óháð kyni og uppruna.

Menntunar- og hæfniskröfur
Reynsla af starfi í skóla æskileg.
Góð færni í mannlegum samskiptum.
Stundvísi, frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Sér um daglega ræstingu skv. nánari lýsingu, heldur húsnæði og lóð skólans hreinni og snyrtilegri skv. vinnuáætlun.
Aðstoðar nemendur í leik og starfi, leiðbeinir þeim í samskiptum þeirra við aðra nemendur og starfsfólk skólans.
Hefur umsjón með nemendum í frímínútum og matartímum úti og inni. Fylgir nemendum á milli kennslusvæða og einnig í búningsklefum ef með þarf.
Fylgist með nemendum í hléum milli kennslustunda, leiðbeinir þeim í samskiptum.
Hefur umsjón með nemendum í lengdri viðveru.
Aðstoðar nemendur ef með þarf við að ganga frá fatnaði sínum og hefur umsjón með fatahengi og óskilamunum
Aðstoðar starfsfólk í mötuneyti á álagstímum samkvæmt vinnuáætlun
Fylgir nemendum, aðstoðar og hefur eftirlit með þeim í gegnum búningsklefa fyrir íþróttir og sund.
Auglýsing birt23. janúar 2023
Umsóknarfrestur27. janúar 2023
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Varmaland-skóli 134934, 311 Borgarnes
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar