

Skólafélagsráðgjafi
Stekkjaskóli auglýsir eftir skólafélagsráðgjafa í 100% stöðuhlutfall frá 1. ágúst 2026.
Um er að ræða nýja stöðu vegna innleiðingar laga um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna. Viðkomandi þarf að hafa menntun og starfsréttindi félagsráðgjafa ásamt þekkingu á úrræðum bæði ríkis og sveitarfélaga.
Skólafélagsráðgjafi vinnur að því að styðja nemendur, foreldra og starfsfólk skólans svo að nemendur geti notið sín sem best í námi og félagslífi. Starf skólafélagsráðgjafa felst í að vinna með félagslegar aðstæður, samskipti og stuðningskerfi í kringum nemendur. Hann er trúnaðarmaður og talsmaður nemenda og er bundinn þagnarskyldu um einkamál þeirra, að undanskildum ákvæðum í lögum um barnavernd.
Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1000 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.
- Nemendaráðgjöf m.a. vegna félaglegs, námslegs og/eða tilfinningalegs vanda
- Foreldraráðgjöf vegna nemenda m.a. vegna uppeldis, hegðunarerfiðleika og/eða samskipta innan fjölskyldu
- Ráðgjöf og handleiðsla við starfsmenn skóla vegna nemenda
- Samþætt þjónusta í þágu farsældar barna, tengiliður skóla
- Hafa þverfaglegt samstarf við velferðarþjónustu, heilsugæslu, barnavernd og aðrar stofnanir sem koma að málefnum nemenda.
- Sjálfstyrkinganámskeið fyrir minni og stærri hópa
- Forvarnavinna í samráði við skólastjóra og þátttaka í mótun forvarnaáætlana
- Samvinna við aðila innan skóla og utan sem tengdir eru málefnum einstakra nemenda og/eða nemendahópa
- Þátttaka í mótun og þróun úrræða fyrir nemendur
- Þátttaka í viðbragðsteymi skólanna sem virkjað er þegar alvarleg mál koma upp
- Fundarseta í nemendaverndarráðum skólanna
- Háskólapróf í félagsráðgjöf og starfsréttindi félagsráðgjafa á Íslandi
- Þekking og reynsla af viðtalstækni við börn er skilyrði
- Þekking og vinnsla með greiningartæki er kostur (s.s. Estermat)
- Geta til að nýta viðurkennda vísindalega þekkingu við úrlausn mála
- Áhugi á að vinna að velferð barna og ungmenna
- Krafa er um lipurð í samskiptum, jákvæðni og sveigjanleika
- Hæfni til að tjá sig í ræðu og koma frá sér vönduðum skriflegum texta
- Frumkvæði, skipulagshæfileikar og sjálfstæði í vinnubrögðum
Íslenska





