atNorth
atNorth
atNorth

SKJALASTJÓRI

Hér er spennandi tækifæri fyrir metnaðarfullan aðila sem hefur áhuga á að taka vikan þátt í að móta samræmda og faglega skjalastjórnun í byggingaframkvæmdum í alþjóðlegu umhverfi.

atNorth leitar að skipulögðum og nákvæmum aðila í starf skjalastjóra.

Skjalastjóri styður við Verkefnastofu (PMO) atNorth og vinnur að því að tryggja samræmda og vandaða skjalastjórnun í öllum þróunarverkefnum fyrirtækisins.

Skjalastjóri gegnir lykilhlutverki í rekstri og þróun rafræns skjalastjórnunarkerfis atNorth, setur upp og viðheldur verkflæði skjala og tryggir að nafnavenjur, útgáfustýring og sniðmát séu notuð með samræmdum hætti í samræmi við innri verklagsreglur og samningsbundnar kröfur. Starfið felur í sér mikla og nána samvinnu með verkefnastjórum, hönnunarstjórum, verktökum og öðrum hagaðilum.

Starfið getur verið staðsett í Reykjanesbæ, Akureyri eða Hafnarfirði.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón og dagleg rekstrarstýring rafræns skjalastjórnunarkerfis, þ.m.t uppsetning og viðhald verkflæðis
  • Eftirlit með skilum gagna og eftirfylgni með upplýsingaskilum og áföngum verkefna
  • Tryggja að öll skjöl uppfylli kröfur um nafnavenjur, útgáfustýringu, samningsákvæði og viðeigandi staðla
  • Stuðningur við verkefnateymi í allri skjalastjórn, notkun ferla og leiðbeininga
  • Viðhald og miðlun uppfærðra sniðmáta, gátlista og verklagsreglna til að tryggja samræmi milli verkefna
  • Fræðsla og leiðbeiningar til innri teyma og verktaka um ferla skjalastjórnunar og notkun kerfa
  • Ráðgjöf og notendastuðningur varðandi kerfisnotkun og aðgangsstýringar
  • Stuðla að bestu starfsvenjum í skjalastjórnun og samræmdri þekkingarmiðlun
  • Efla samstarf milli teyma og verktaka með skilvirku verkflæði og réttum aðgangsstýringum
  • Tryggja samræmi við innri verklagsreglur, samningskröfur og viðeigandi vottanir
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af skjalastjórnun, kostur ef tengt byggingarframkvæmdum eða gagnaverum
  • Góð þekking á skjalastjórnunarkerfum og bestu starfsvenjum
  • Þekking á bygginga- eða verkfræðilegri skjölun er kostur
  • Góð almenn tölvukunnátta og tæknilæsi; reynsla af kerfum á borð við Autodesk Construction Cloud (ACC) eða BIM360 er mikill kostur
  • Sterk færni í upplýsingatækni og stafrænu samstarfi
  • Geta til að viðhalda stöðlum og tryggja samræmi milli ólíkra hagaðila
  • Framúrskarandi samskiptahæfni og geta til að fræða og styðja fjölbreytt teymi
  • Rík skipulagshæfni, nákvæmni og lausnamiðað hugarfar
  • Færni til að vinna með mörg verkefni og tímamörk samtímis í hröðu og krefjandi umhverfi
  • Mjög góð enskukunnátta og íslenskukunnátta mikill kostur
Fríðindi í starfi

Helstu kostir þess að vinna hjá atNorth

  • Viðeigandi þjálfun, símenntun og tækifæri til að þróast í starfi
  • Heilsumiðað hugarfar með áherslu á jafnvægi milli vinnu og einkalífs
  • Íþróttastyrkur til að rækta líkama og sál
  • Skemmtinefnd sem heldur stemningunni lifandi
  • Veitingaþjónusta á vinnustaðinn
  • Fjarskiptapakki og símastyrkur
  • Alþjóðlegur vinnustaður með fjölbreytileika og fjölmenningu
Auglýsing birt9. mars 2026
Umsóknarfrestur17. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Fitjar 1, 260 Reykjanesbær
Rangárvellir 150122, 603 Akureyri
Steinhella 10, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar