

Skemmtilegt sumarstarf í búsetukjarna
Viltu vera með í að skapa fötluðu fólki tækifæri til að lifa til fulls?
Við í Lönguhlíð í Mosfellsbæ leitum eftir öflugu og framsækni starfsfólki til liðs við okkur. Við veitum íbúum einstaklingsmiðaða þjónustu og leggjum okkur fram um að auka víðsýni þeirra með félagslegri virkni. Starfsfólk vinnur eftir hugmyndafræði þjónandi leiðsagnar og hugmyndafræði um sjálfstætt líf. Einnig leggjum við mikið upp úr góðri liðsheild og samvinnu á staðnum. Við störfum skv. lögum um fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018 og skv stefnu Mosfellsbæjar í málaflokknum.
Gengið er út frá því að starfsmenn vinni á fjölbreyttum vöktum (dag-, kvöld-, helgar- og næturvöktum).
Um sumarstarf er að ræða.
Mosfellsbær er öflugt og eftirsótt sveitafélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.
- Starfað er samkvæmt hugmyndafræði um sjálfstætt líf og þjónandi leiðsögn
- Veita íbúum stuðning við allar athafnir dagsleg lífs
- Fylgja eftir þjónustuáætlunum og verklagsreglum
- Virkja íbúa til þátttöku í samfélaginu
- Almenn heimilisstörf
- Góð almenn menntun
- Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
- Reynsla af störfum með fötluðu fólki er mikill kostur
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
- Þjónustulund og jákvæðni í starfi
- Framtakssemi, sjálfstæði og samviskusemi
- Almenn tölvukunnátta
- 20 ára aldurstakmark
- Tala og skilja íslensku
- Hreint sakavottorð
- Bílpróf












