Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Skapandi sumarstörf

Í sumar býðst einstaklingum og hópum á aldrinum 18-25 ára (fæddir 1999-2006) að koma með hugmyndir að skapandi verkefnum í Hafnarfirði. Einstaklingar og hópar fá tækifæri til að starfa í sumar við að sinna skapandi verkefnum og kynna þau fyrir bæjarbúum og gestum yfir sumartímann. Skapandi sumarstörf, sem rekin eru sem hluti af Vinnuskóla Hafnarfjarðar í samstarfi við ungmennahúsið Hamarinn, er ætlað sem stökkpallur fyrir ungt listafólk til að þróa sig áfram í sinni list, þjálfa sig í að vinna sjálfstætt og koma listsköpun sinni á framfæri.

Umsækjendur þurfa að vera á aldrinum 18-25 ára. Við val á verkefnum verður meðal annars tekið tillit til raunhæfni og frumleika verkefnisins, fjárhagsáætlunar, fjölbreytni verkefna, kynjahlutfalli umsækjenda og gæði umsókna. Gerður verður samningur um fyrirkomulag verkefnis við viðkomandi umsækjendur sem valdir verða. Hægt er að fá aðstoð við skrif umsóknar hjá Margréti Gauju, deildarstýru Hamarsins og ungmennahúsa Hafnarfjarðar. Netfangið hennar er mgm@hafnarfjordur.is.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Að vinna eftir eigin framkvæmdar- og verkáætlun
  • Að starfsfólk sé virkt á samfélagsmiðlum og að kynna verkefnið
  • Að vera í samstarfi og samráði við aðra þátttakendur í Skapandi sumarstörfum
  • Að halda vinnudagbók og mæta á alla fundi sem verkefnastýra skipuleggur
  • Að koma fram á skipulögðum viðburðum á vegum Hafnarfjarðarbæjar líkt og 17. júní o.fl.
  • Að taka virkan þátt í uppskerudögum Skapandi sumarstarfa haustið 2024 eða með einum eða öðrum hætti sýna afrakstur og útkomu verkefnis að kostnaðarlausu fyrir bæjarbúa.

Senda þarf neðangreindar upplýsingar og fylgigögn með sem viðhengi með umsókn:

  • Greinargóð lýsing á verkefninu, umfangi þess og markmiðum
  • Tíma- og verkáætlun
  • Fjárhagsáætlun
  • Upplýsingar um alla aðstandendur verkefnisins og tilgreina einn tengilið verkefnisins

Umsóknarfrestur er til og með 31. mars 2024.

Athugið að aðeins er um laun að ræða en ekki önnur fjármögnun á verkefninu. Verkefni standa straum af öllum tilfallandi framleiðslukostnaði sjálf.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Hlíf stéttarfélag.

Gerður verður samningur um fyrirkomulag verkefnis við viðkomandi umsækjendur sem valdir verða. Forstöðumenn Vinnuskóla Hafnarfjarðar, deildarstýra ungmennahúsa og verkefnastýra Skapandi sumarstarfa sitja í valnefnd sem skilar niðurstöðum fyrir 15. apríl 2024.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Klara Ósk Elíasdóttir, verkefnastýra Skapandi sumarstarfa í tölvupósti klaraosk@hafnarfjordur.is

Heildartímafjöldi eru 208 tímar og gert ráð fyrir að verkefnið sé unnið í 8 vikur á tímabilinu júní-júlí.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Auglýsing stofnuð27. mars 2024
Umsóknarfrestur31. mars 2024
Staðsetning
Strandgata 6, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar