A4
A4
A4

A4 Hafnarfjörður – Besta sumarstarfið!

A4 óskar eftir að ráða kraftmikinn sölufulltrúa í verslun okkar í Hafnarfirði. Við leitum eftir ábyrgðarfullum og sjálfstæðum einstaklingi til starfa í 50 – 80% starfshlutfall í sumar. Helstu verkefni sölufulltrúa er að veita viðskiptavinum góða þjónustu og ráðgjöf, fylla á vörur, framstillingar í búðinni og afgreiðsla á kassa.
Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða samkvæmt nánara samkomulagi.

Helstu verkefni:

  • Sala, ráðgjöf og framúrskarandi þjónusta við viðskiptavini verslunarinnar
  • Áfyllingar, framstillingar, móttaka á vörum og afgreiðsla á kassa
  • Önnur almenn verslunarstörf.

Hæfniskröfur og reynsla:

  • Reynsla af sölu- og verslunarstörfum
  • Framúrskarandi þjónustulund og áhugi á sölustörfum
  • Sjálfstæði og frumkvæði í starfi
  • Snyrtimennska og auga fyrir framstillingu vara
  • Sveigjanleiki og geta til að vinna undir álagi
  • Góð samskiptahæfni, kurteisi og jákvæðni
  • Íslenskukunnátta
  • 18 ára aldurstakmark

Umsóknarfrestur er til og með 3. maí 2024.

Nánari upplýsingar um starfið veitir verslunarstjóri Kolbrún í síma 580-0009.

A4 er framsækið fyrirtæki og leggur metnað sinn í að vera í fararbroddi á sviði húsgagna, skrifstofu-, skóla-, föndur- og hannyrðavara og leggur áherslu á góða og trausta þjónustu við viðskiptavini. Við erum stolt af því að geta boðið upp á heimsþekkt vörumerki sem eiga það öll sameiginlegt að vera í háum gæðaflokki. Hjá fyrirtækinu starfa um 130 manns.

Auglýsing stofnuð26. apríl 2024
Umsóknarfrestur3. maí 2024
Tungumálakunnátta
ÍslenskaÍslenskaFramúrskarandi
Staðsetning
Helluhraun 16-18, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar