

Sjúkraliði óskast á bráðaöldrunarlækningadeild
Bráðaöldrunarlækningadeild B4 í Fossvogi óskar eftir að ráða sjúkraliða til starfa. Við bjóðum jafnt velkomna reynslubolta sem og nýútskrifaða sjúkraliða í okkar góða hóp því við teljum gott að hafa breidd í þekkingu og reynslu. Unnið er á þrískiptum vöktum og er starfshlutfall samkomulag.
Bráðaöldrunarlækningadeild er 22 rúma og er meginstarfsemi deildarinnar greining og meðferð bráðra sjúkdóma hjá öldruðum. Markvisst er unnið að umbótum í starfi og umhverfi og er áhersla lögð á byltuvarnir, þrýstingssáravarnir, sýkingavarnir og að fyrirbyggja lyfjaatvik. Á deildinni starfa rúmlega 50 manns í þverfaglegu teymi. Við leggjum áherslu á jákvæðni, fagmennsku og virðingu gagnvart samstarfsfólki og vinnustaðnum okkar.
Í boði er góð einstaklingsaðlögun undir leiðsögn reyndra sjúkraliða og gott starfsumhverfi. Starfið býður upp á tækifæri til að þróa með sér mikla faglega þekkingu á hjúkrun aldraðra og hæfni í sjálfstæðum vinnubrögðum.







































