

Settu góða strauma í fjármálin - Sérfræðingur í greiningum og áætlanagerð
Hversu mikilvægt er að vera með góðar greiningar og áætlanir þegar verið er að reka víðfeðmasta dreifikerfi landsins? Svar: Mjög! Við leitum því að greindum sérfræðingi með góð plön sem getur flutt góða strauma inn á fjármálasvið okkar.
Í þessu starfi muntu hafa yfirumsjón með rekstraráætlunum, tekjuáætlunum og fjárfestingaráætlunum, tryggja að forsendur séu í takt við nútíð og framtíð – og greina frávik af nákvæmni, allt í samvinnu við stjórnendur og frábært teymi. Þú styður við stefnumótun með hag- og fjárhagslegum greiningum, vinnur að sviðsmyndagreiningum og arðsemismati fjárfestinga og heldur utan um langtímaspár í samstarfi við framkvæmdastjórn.
Þetta hlutverk er kjarninn í því að tengja saman stefnu og framkvæmd með skýrum gögnum, skýrslum og sviðsmyndum sem styðja raunverulega við ákvarðanatöku – og knýja áfram orkuskiptin.
Við leitum að öflugum og lausnamiðuðum sérfræðingi til að leiða áætlanagerð og fjárhagslega greiningu hjá okkur. Rétta manneskjan í starfið hefur brennandi áhuga á að nýta gögn til að móta stefnu og hafa áhrif, framtíðarþenkjandi persónuleika og elskar að koma að fjölbreyttum verkefnum þar sem þörf er á næmu auga fyrir samhengi. Reynsla af sambærilegu FP&A eða greiningarhlutverki er mikilvæg, en við metum líka hugsunina, drifkraftinn og getuna til að þýða tölur yfir í skýra sýn..
Íslenska










