Efstihjalli
Efstihjalli
Efstihjalli

Sérkennslustjóri í leikskólann Efstahjalla

Leikskólinn Efstihjalli er fimm deilda leikskóli. Í leikskólanum eru 97 börn á aldrinum eins til sex ára. Við leitum eftir áhugasömum einstaklingi sem hefur metnað fyrir starfinu. Eitt af meginverkefnum sérkennslustjóra er að vera faglegur umsjónamaður sérkennslu í leikskólanum.

Leikskólinn er í grónu hverfi í göngufæri við Fossvogsdal, Kópavogsdal og Digraneshæð. Áherslur í starfinu eru á leikinn í allri sinni fjölbreytni, félagsfærni barnanna og hreyfingu.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leikskólakennaramenntun
  • Æskilegt er að viðkomandi hafi framhaldsnám í sérkennslufræðum eða öðru því sem nýtist í starfi
  • Reynsla af stjórnun leikskóla kostur
  • Frumkvæði í starfi, jákvæðni og að geta unnið sjálfstætt
  • Hæfni í mannlegum samskiptum

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ber ábyrgð á og stjórnar skipulagningu, framkvæmd og endurmati sérkennslunnar í leikskólanum ásamt leikskólastjóra
  • Er faglegur umsjónarmaður sérkennslu í leikskólanum, annast frumgreiningu og ráðgjöf til annarra starfsmanna leikskóla
  • Vinnur í nánu samstarfi við deildastjóra, foreldra/forráðamenn barna sem njóta sérkennslu í leikskólanum og situr fundi og viðtöl með þeim

Ráðningartími og starfshlutfall

  • Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi.
  • Starfshlutfall er 100%

Nánari upplýsingar
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.

Umsóknarfrestur er til og með 15. desember 2022. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi.

Þeir sem ráðnir eru til starfa í leikskólum Kópavogs þurfa að undirrita heimild til að afla upplýsinga úr sakaskrá.

Eingöngu er tekið við umsóknum í gegnum ráðningarvef Alfreðs.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Allir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið.

Nánari upplýsingar veitir Halla Ösp Hallsdóttir leikskólastjóri í síma: 4416101 netfangið: [email protected]

Upplýsingar um leikskólann má finna á http://efstihjalli.kopavogur.is

Auglýsing birt24. nóvember 2022
Umsóknarfrestur15. desember 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Efstihjalli 2, 200 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Skipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar