Vesturbyggð
Vesturbyggð
Vesturbyggð

Sérkennslustjóri á leikskólanum Arakletti á Patreksfirði

Á Arakletti fer fram mikið og metnaðarfullt starf, þar sem áherslan er á samskipti og að vera góðir vinir, ásamt ásamt sköpun og sjálfstæði barnanna. Við erum í góðum tengslum við náttúru og nærumhverfi og einnig er gott samstarf á milli leikskóla í svetiarfélaginu og mikill stuðningur við starfsfólk. Við erum stolt af að geta boðið uppá húsnæði sem uppfyllir nútíma kröfur og starf sem er í rífandi þróun, þar sem við erum meðal annars að innleiða Heillaspor í samstarfi við Miðstöð Menntunar og Skólaþjónustu sem einn af fyrstu leikskólum á landinu. Hér koma saman á ári hverju 40-50 börn á tveimur deildum og 15-18 starfsmenn sem leggja sig fram um að öll börn fái það sem þau þurfa og að starfsfólkinu líði vel.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Bera ábyrgð á og stjórnun, skipulagningu, framkvæmd og endurmati sérkennslu í leikskólanum, ásamt leikskólastjóra.
  • Að vera fagleg umsjónarmanneskja sérkennslu í leikskólanum og annast því frumgreiningu barna og sjá um ráðgjöf og aðra fræðslu tengdri sérkennslu til starfsmanna leikskólans.
  • Vera tengiliður farsældar í leikskólanum og vinna í nánu samstarfi við deildarstjóra, foreldra/forráðamenn barna og fleiri, samkvæmt lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leikskólakennaramenntun, þroskaþjálfamenntun, framhaldsnám í sérkennslufræðum eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi.
  • Góð íslenskukunnátta og enskukunnátta. 
  • Frumkvæði í starfi, samskiptahæfni og sjálfstæð vinnubrögð.
Fríðindi í starfi

Frítt fæði á vinnutíma. 
Börn starfsfólks hafa forgang í leikskóla. 
Aðstoð við að skaffa húsnæði ef þörf krefur. 

Auglýsing birt17. júlí 2025
Umsóknarfrestur1. ágúst 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Grunnfærni
Staðsetning
Aðalstræti 75, 450 Patreksfjörður
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HugmyndaauðgiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.Þolinmæði
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar