Sólhvörf
Sólhvörf
Sólhvörf

Sérkennari/stuðningur óskast í Sólhvörf

Leikskólinn Sólhvörf óskar eftir sérkennara/stuðningi.

Leikskólinn Sólhvörf er 6 deilda leikskóli. Nemendur eru 115 í 6-9 tíma dvöl. Sólhvörf fylgir áherslum Hugsmíðahyggjunnar í uppeldisstarfi leikskólans með áherslu á sjálfræði barnsins. Einkunarorð skólans eru: Virðing, Sjálfræði og Virkni.

Heimasíðan okkar er: https://solhvorf.kopavogur.is/

Helstu verkefni og ábyrgð:
· Starfið felur í sér stuðning við börn með þroskafrávik.
· Öflug teymisvinna þar sem hagsmunir barnsins ráða för.
· Áhersla lögð á fagleg vinnubrögð.

Menntunar- og hæfniskröfur:
· Leikskólakennaramenntun, þroskaþjálfi eða önnur uppeldismenntun.
· Ábyrgur og jákvæður einstaklingur sem á auðvelt með mannleg samskipti.
· Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
· Reynsla af skipulagningu sérkennslu og þjálfun
· Góð íslenskukunnátta.

Ef ekki fæst leikskólakennari, þroskaþjálfi verður ráðinn starfsmaður með aðra uppeldismenntun eða leiðbeinandi.

Ráðningartími og starfshlutfall
· Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
· Starfshlutfall er 75%-100% og um framtíðarstarf er að ræða.

Frekari upplýsingar
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Unnið samkvæmt skóla án aðgreiningar.

Þeir sem ráðnir eru til starfa í leikskólum Kópavogs þurfa að undirrita heimild til að afla upplýsinga úr sakaskrá.

Umsóknarfrestur er til og með 21.nóvember 2019.

Nánari upplýsingar veita Eyja Bryngeirsdóttir, leikskólastjóri og Gerður Magnúsdóttir, aðstoðarleikskólastjóri í síma 4417700.

Karlar jafnt sem konur eru hvött til að sækja um starfið.

Auglýsing birt7. nóvember 2019
Umsóknarfrestur22. nóvember 2019
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Álfkonuhvarf 17, 203 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar