Smáraskóli
Smáraskóli
Smáraskóli

Sérkennari Smáraskóla - tímabundið starf til áramóta

Smáraskóli leitar að sérkennara á yngsta stigi á haustönn í tímabundið starf vegna forfalla. Un er að ræða ráðningu til áramóta.

Í Smáraskóla er litið á hvern árgang sem eina heild þar sem teymi kennara vinna með nemendum.

Smáraskóli er heildstæður grunnskóli með um 500 nemendur og 80 starfsmenn. Unnið er samkvæmt uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar, skólinn er heilsueflandi grunnskóli og verið er að vinna að því að Smárskóli verði réttindaskóli UNICEF.

Lögð er áhersla á skapandi skólastarf og samvinnu kennara og nemenda og er teymiskennsla það fyrirkomulag sem lagt er til grundvallar. Allir kennarar ásamt nemendum í 5. – 10. bekk eru með spjaldtölvur og mikil áhersla er lögð á einstaklingsmiðun náms og fjölbreytta kennsluhætti.

Smáraskóli er staðsettur í fallegu umhverfi í Kópavogsdalnum og miklir möguleikar eru til hreyfingar, útivistar og útikennslu í nágrenni skólans.

Menntun og mannrækt er leiðarljós í starfi Smáraskóla.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinnur með kennurum og öðrum samstarfsaðilum að námi og þroska nemenda
  • Veitir ráðgjöf og leiðsögn til samstarfsaðila.
  • Kemur að gerð einstaklingsáætlana.
  • Samstarf innan skólans að faglegum málefnum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla. Viðbótarnám í sérkennslu æskilegt.
  • Þekking og reynsla af vinnu með nemendum með fjölþættan vanda
  • Einlægur áhugi á að vinna með börnum.
  • Þolinmæði og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi.
  • Mjög góð íslenskukunnátta
Auglýsing birt5. ágúst 2026
Umsóknarfrestur16. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Dalsmári 1, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.KennslaPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Umönnun (barna/aldraðra/fatlaðra)PathCreated with Sketch.Þolinmæði
Starfsgreinar
Starfsmerkingar