
Klettaskóli
Klettaskóli-Korpu, Barðastöðum 2, óskar eftir tónmenntakennara í 40% starf
Klettaskóli er sérskóli fyrir nemendur með þroskahömlun og viðbótarfatlanir og eru einkunnarorð skólans "Menntun fyrir lífið". Unglingadeild Klettaskóla flytur á Barðastaði 2, 113 Reykjavík og við leitum að öflugum tónmenntakennara í 40% starfshlutfall til að bætast í fjölbreyttan og lifandi starfsmannahóp skólans.
Við óskum eftir tónmenntakennara í 40% starf frá og með 1. ágúst 2026. Í starfinu felst almenn tónmenntakennsla í bekkjum, auk þess að sjá um/taka þátt í ýmsum viðburðum í skólanum eins og jólaskemmtun, samsöng (kór) o.s.frv.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Starfa í þverfaglegu teymi list- og verkgreinakennara
- Vinna einstaklingsnámskrár og námsmat
- Samstarf við samkennara, foreldra og aðra fagaðila
- Vinna samkvæmt stefnu skólans og taka þátt í skólaþróunarvinnu
Menntunar- og hæfniskröfur
- Starfsleyfi til að starfa sem grunnskólakennari
- Sveigjanleiki og framúrskarandi hæfni í samskiptum
- Hæfni til að vinna í teymi
- Áhugi á að starfa með börnum og unglingum
- Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi
- Lausnarmiðuð hugsun
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Stundvísi
- Góð íslenskukunnátta (C1)
Auglýsing birt4. ágúst 2026
Umsóknarfrestur13. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Barðastaðir 2, 112 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Leikskólakennarar og annað starfsfólk óskast í Krikaskóla
Krikaskóli

Hofsstaðaaskóli - umsjónarkennari
Garðabær

Umsjónarkennari á miðstig!
Salaskóli

Íþróttakennari óskast í hlutastarf
Snælandsskóli

Sérkennsla í leikskólanum Ævintýraborg við Nauthólsveg
Ævintýraborg við Nauthólsveg

Kennarastöður við Flóaskóla
Flóaskóli

Kennari í hönnun og smíði!
Salaskóli

Leikskólakennarar óskast
Kópasteinn

Leikskólakennari óskast
Heilsuleikskólinn Skógarás

Skólaliði óskast í Árbæjarskóla frá hausti 2026
Árbæjarskóli

Leikskólakennari í Leirvogstunguskóla
Leirvogstunguskóli

Stærðfræðikennari óskast í unglingadeild í Árbæjarskóla frá hausti 2026
Árbæjarskóli