Suðurhlíðarskóli
Suðurhlíðarskóli
Suðurhlíðarskóli

Kennari á yngsta stigi, teymisvinna í 1. - 3. bekk.

Kennari á yngsta stigi óskast, teymiskennsla.

Við leitum að kennara sem hefur reynslu í kennslu á yngsta stigi, með sérstaka áherslu á íslensku kennslu. Þekking á Pals lestrarkennslu er mikill kostur. Það eru um 20 börn í 1. - 3. bekk og okkur vantar þriðja kennarann í teymið.

Þetta er u.þ.b 60% staða.

Suðurhlíðarskóli er sjálfstætt starfandi kristilegur grunnskóli, staðsettur í Suðurhlíð 36. Nemendur skólans eru milli 65-70 talsins, í 1.-10. bekk.

Það er samkennsla hópa og mikið unnið í teymum. Nándin er mikil og allir þekkja alla, eins og sætur sveitaskóli í borginni.
Í skólanum er lögð áhersla á skapandi skólastarf, nám við hæfi hvers og eins, samfélagsþjónustunám og teymisvinnu kennara.
Einkunnarorð skólans eru ábyrgð, þátttaka og þjónusta.

Leitað er að einstaklingi sem býr yfir framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum, frumkvæði, góðri fagþekkingu á skólastarfi og vill vinna í góðu og jákvæðu umhverfi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Annast kennslu á yngsta stigi í nánu samstarfi við starfsfólk í yngsta stigs teymi.
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagfólk.
  • Vinna að þróun skólastarfs með samstarfsmönnum og stjórnendum.
  • Vinna samkvæmt stefnu skólans og tekur þátt í skólaþróunarvinnu.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Framúrskarandi íslenskukunnátta
  • Leyfi til að nota starfsheitið kennari
  • Menntun og hæfni til kennslu á yngsta stigi
  • Mjög góð hæfni í samskiptum og samstarfi 
  • Faglegur metnaður, frumkvæði í starfi og áhugi á skólaþróun
  • Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
Auglýsing birt5. ágúst 2026
Umsóknarfrestur13. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Suðurhlíð 36, 105 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar