Álfhólsskóli
Álfhólsskóli
Álfhólsskóli

Sérkennari í sérdeild fyrir einhverfa

Álfhólsskóli leitar að jákvæðum og áhugasömum starfsmönnum til þátttöku í skemmtilegu skólastarfi.

Í Álfhólsskóla eru um 570 nemendur í 1. til 10. bekk og um 120 starfsmenn. Skólinn byggir á langri hefð fyrir framsæknu og árangursríku skólastarfi þar sem áhersla er lögð á þátttöku í þróunarverkefnum. Í Álfhólsskóla er skapandi starf með fjölbreyttum kennsluháttum og nám við hæfi hvers og eins. Í skólanum eru starfrækt sérhæfð námsver fyrir einhverfa nemendur.

Einkunnarorð skólans eru: menntun – sjálfstæði - ánægja.


Helstu verkefni og ábyrgð

  • Sérkennsla í sérdeild einhverfa á unglingastigi


Menntunar- og hæfniskröfur

  • Sérkennaramenntun, þroskaþjálfamenntun eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi
  • Góð íslenskukunnátta
  • Þekking og reynsla af teymiskennslu er æskileg
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Mjög góð þekking á upplýsingatækni og notkun rafrænna miðla í kennslu og starfi
  • Viðkomandi þurfa að vera sjálfstæðir og drífandi og áhugasamir fyrir þróunarstarfi


Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands.

Starfshlutfall er 100%. Umsóknarfrestur er til og með 14. maí 2022.

Bent er á að samkvæmt lögum verða umsækjendur að skila sakavottorði.

Eingöngu er tekið við umsóknum í gegnum ráðningarvef Alfreðs.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Allir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið.

Upplýsingar um skólastarfið í Álfhólsskóla er að finna á www.alfholsskoli.is.

Upplýsingar gefa Sigrún Bjarnadóttir, skólastjóri eða Einar Birgir Steinþórsson, aðstoðarskólastjóri í síma 441 3800 eða með fyrirspurn á [email protected].

Auglýsing birt29. apríl 2022
Umsóknarfrestur14. maí 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Álfhólsvegur 120, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar