Rún Heildverslun
Rún Heildverslun

Sérfræðingur í stafrænni markaðssetningu og rekstri netverslunar

Heildverslunin Rún ehf. óskar eftir kraftmiklum og metnaðarfullum einstaklingi til að leiða stafræna markaðssetningu og taka beina ábyrgð á uppbyggingu og daglegum rekstri netverslana félagsins.

Þetta er kjörið tækifæri fyrir einstakling með frumkvæði, innsýn í netverslun og markaðssetningu auk vilja til að byggja upp og þróa öflugt stafrænt söluumhverfi með góðum stoðum í tækni og innviðum.

Við leitum að einstaklingi sem hefur:

• Reynslu af rekstri netverslunar og stafrænum herferðum

• Þekkingu á e-commerce kerfum

• Sterka innsýn í hegðun neytenda á netinu

• Frumkvæði, skipulag og sjálfstæði í vinnubrögðum

• Góð færni í íslensku og ensku, bæði rituðu og töluðu máli, danska mikill kostur

Við bjóðum:

• Mikil áhrif í vaxandi rekstri með skýrri framtíðarsýn

• Sveigjanlegt og krefjandi starf í nánu samstarfi við stjórnendur

• Góðan stuðning innanhúss með innkaupadeild, kerfisstjóra og samstarfsaðila í pökkun og sendingum

• Tækifæri til að byggja upp stafræna sölu sem lykilstoð í vexti félagsins

Helstu verkefni og ábyrgð

• Ábyrgð á daglegum rekstri netverslana félagsins (B2C og B2B)

• Leiða og framkvæma stafrænar auglýsingaherferðir (Meta Ads, Google Ads o.fl.)

• Sköpun og birting efnis á vef og á samfélagsmiðlum

• Umsjón með herferðum, kynningum og aflsáttarkerfum í samstarfi við söluteymi og innkaup

• Greining á hegðun viðskiptavina, sölu og árangri herferða (A/B prófanir, ROAS, CTR o.fl.)

• Samstarf við kerfisstjóra, innkaupadeild og afhendingaraðila um áframhaldandi vöxt og upplifun viðskiptavina

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun í markaðsfræði, viðskiptafræði, miðlun, upplýsingatækni eða sambærilegu sviði er kostur
  • Mikilvægt er að viðkomandi hafi raunverulega reynslu af stafrænum herferðum og netverslun, óháð formlegu námi
Auglýsing birt13. júní 2025
Umsóknarfrestur27. júní 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
DanskaDanska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Köllunarklettsvegur 2, 104 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar