
Samgöngustofa
Samgöngustofa er stjórnsýslustofnun samgöngumála sem annast eftirlit með flugi, siglingum og umferð. Á hverjum degi erum við að læra hvert af öðru og sinna viðskiptavinum af kostgæfni með það að markmiði að verða betri og betri.

Power BI sérfræðingur
Samgöngustofa leitar að öflugum og framsýnum einstaklingi í stöðu Power BI sérfræðings til að leiða vegferð stofnunarinnar í þróun gagnadrifinna lausna sem styðja við stefnumótun og daglega ákvarðanatöku. Starfið er hluti af upplýsingatæknideild Samgöngustofu og heyrir undir stjórnanda deildarinnar. Við leitum að einstaklingi sem er árangursdrifinn, lausnamiðaður og með brennandi áhuga á gögnum og greiningu.
Um er að ræða spennandi starf þar sem viðkomandi hefur tækifæri til að hafa áhrif á uppbyggingu gagnamenningar innan stofnunarinnar og til að móta sýn hennar á sviði gagnagreininga. Starfshlutfall er 100% og boðið er upp á sveigjanlegt starfsumhverfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vinnsla og greining upplýsinga úr ökutækja- og skipaskrá stofnunarinnar fyrir ytri viðskiptavini
- Uppbygging vöruhús gagna
- Hönnun og þróun mælaborða og gagnaskýrslna í Power BI
- Sjálfvirknivæðing skýrslugerðar og miðlun upplýsinga
- Samstarf við innri teymi stofnunarinnar til að greina þarfir og þróa sérsniðnar gagnalausnir
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af upplýsingavinnslu og gagnagreiningu, með áherslu á Power BI og hönnun mælaborða
- Þekking á gagnageymslum, ETL-ferlum og gagnalíkönum (t.d. SQL, Dataflows, DAX)
- Kostur er að hafa reynslu af Oracle-gagnagrunnum
- Fag- eða háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Færni í að vinna sjálfstætt og leita nýrra leiða við þróun gagnalausna
- Góð samskiptahæfni og jákvætt og lausnamiðað viðhorf sem styrkir og auðveldar teymisvinnu
- Mjög góð íslensku og ensku kunnátta
Auglýsing birt2. júní 2025
Umsóknarfrestur16. júní 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn

Nauðsyn
Staðsetning
Ármúli 2, 108 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Engagement & Impact Officer / Sérfræðingur - OpenEU
Háskólinn á Bifröst

Sérfræðingur í vöruhúsi gagna og gagnavinnslu
Gildi

Þjónustu- og söluráðgjafi
Brafa ehf.

Starfsmaður í mótttöku, símsvörun o.fl.
Félag iðn- og tæknigreina

Ráðgjafi á sviði kjaramála
Félag iðn- og tæknigreina

Lögfræðingur
Neytendastofa

STÖRF Á FJÁRMÁLASVIÐI
Travel Connect

Associate Accountant
CCP Games

Hönnuður
Xprent- hönnun og merkingar ehf

Aðalbókari og bókari
AB Varahlutir

Baggage Hall Operations Manager
Icelandair

Viðskiptastjóri
Dropp