

Sérfræðingur í skjalavistun og skjalavistunarkerfum
Taktu til við að vista!
Rarik leitar að skipulagðri og lausnamiðaðri týpu í hlutverk sérfræðings í skjalavistun og skjalaumhverfi. Við viljum finna manneskju sem hefur sérstakt dálæti á röð og reglu, veit hvenær skjal á að vera vistað, hvar það á heima og afhverju það skiptir máli. Fylgdu straumnum til okkar og hjálpaðu til við að koma orkuskiptunum á spjöld sögunnar.
Sérfræðingur skjalavistunar og skjalaumhverfis sér um að móta og þróa stafræna skjalaumsýslu hjá Rarik og tekur þátt í innleiðingu og rekstri skjalakerfa. Þú verður hluti af teymi sem hugsa í lausnum, heldur utan um skjalatengt verklag og tryggir að gögn skili sér – ekki bara á réttan stað heldur líka á réttum tíma og í réttu formi. Í starfinu er fólginn stuðningur og fræðsla við starfsfólk okkar víðsvegar um land í daglegum verkefnum til að tryggja að skjöl séu rétt skráð, aðgengileg og vistuð á öruggan hátt.
Við leitum að manneskju með menntun eða reynslu af upplýsingafræði, skjalaumsýslu eða tengdum greinum og þekkingu á skjalakerfum (t.d. M-Files og SharePoint). Gott skipulag og lausnamiðuð hugsun eru eiginleikar sem við munum horfa eftir hjá umsækjendum. Hér er nauðsynlegt að hafa góða færni í íslensku (og enska er kostur). Við viljum finna manneskju sem upplifir innri gleði þegar skjöl eru rétt merkt, vinnugögn flokka sig sjálf eftir skýrum reglum og enginn ruglar saman lokadrögum og endanlegum útgáfum.
