Digido
Digido
Digido

Sérfræðingur í netmarkaðssetningu

Viltu starfa með öflugu og reynslumiklu teymi í netmarkaðsmálum?

Digido aðstoðar fyrirtæki til að ná betri árangri í markaðsmálum á innlendum og erlendum markaði. Markmið okkar er að hámarka afrakstur fyrirtækja í markaðsmálum með nýtingu gagna, sýnileika á leitarvélum, skilvirkari vefauglýsingum, vefmælingum og greiningum. Meðal viðskiptavina eru Domino’s, Origo, Arion banki, N1, Men and Mice og Meniga.

Við leitum að einstaklingi með ástríðu fyrir markaðs- og vefmálum til að ganga til liðs við okkur.

Starfið felur í sér ráðgjöf og þjónustu til viðskiptavina Digido. Um framtíðarstarf er að ræða.

Starfssvið

  • Ráðgjöf og þjónusta í gagnadrifinni markaðssetningu
  • Umsjón með markaðsherferðum
  • Verkefnastjórnun
  • Mælingar á vefum og herferðum
  • Árangurssamantektir

Hæfniskröfur

  • Góð þekking á Google Ads auglýsingakerfinu
  • Góð þekking á Facebook Business Manager
  • Hæfni og reynsla í Google Analytics
  • Þekking á Google Data Studio er kostur
  • Brennandi áhugi á greiningum og framsetningu gagna

Við bjóðum

  • Samstarf við fjölbreytt og spennandi fyrirtæki
  • Sveigjanleika í starfi
  • 6 tíma vinnudag
  • Skemmtilegt og krefjandi vinnuumhverfi
Auglýsing birt12. júlí 2021
Umsóknarfrestur25. júlí 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Borgartún 29, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FacebookPathCreated with Sketch.Facebook Business ManagerPathCreated with Sketch.GagnagreiningPathCreated with Sketch.GooglePathCreated with Sketch.Google AdsPathCreated with Sketch.Google AnalyticsPathCreated with Sketch.Google Data StudioPathCreated with Sketch.Verkefnastjórnun
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar