

Sérfræðingur í markaðsmálum og viðskiptatengslum
EFLA leitar að öflugum og metnaðarfullum sérfræðingi í markaðsmálum og viðskiptatengslum til að taka virkan þátt í mótun og framkvæmd markaðsstefnu fyrirtækisins innan teymis markaðssetningar og miðlunar hjá EFLU.
Starfið felur í sér greiningu gagna, þjónustustýringu, hugmynda- og textavinnu, samræmingu markaðsaðgerða innan EFLU og dótturfélaga erlendis, stuðning við viðskiptatengsl og þróun þeirra.
Markaðsstarf EFLU byggir á traustum viðskiptasamböndum og markvissri miðlun sem styður við ímynd fyrirtækisins. Beinar tengingar við viðskiptavini eru veigamiklar í markaðsstarfinu en einnig er lögð áhersla á öfluga miðlun í gegnum vefsíðu og samfélagsmiðla, þar sem efni er sniðið að ólíkum markhópum og endurspeglar fjölbreytileika og sérfræðiþekkingu EFLU.
Ef þú hefur reynslu og brennandi áhuga á sambærilegum verkefnum viljum við gjarnan heyra frá þér.
- Mótun og innleiðing áherslna og aðgerða í markaðsmálum EFLU.
- Ábyrgð á gerð markaðsáætlana og eftirfylgni.
- Þróun og samræming skilaboða fyrir ólíka markhópa, með áherslu á fyrirtækjamarkað (B2B).
- Ráðgjöf og stuðningur við starfsfólk EFLU varðandi markaðsmál.
- Tengiliður við dótturfélög EFLU sem starfa í Noregi, Svíþjóð, Frakklandi, Póllandi og Danmörku varðandi markaðs- og kynningarmál.
- Þátttaka í viðskiptatengslum og hagnýting CRM-kerfis í markaðsstarfi.
- Þjónustustýring í tengslum við upplifun viðskiptavina og eftirfylgni.
- Greining gagna og markaðsrannsókna til að styðja við ákvarðanatöku.
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. í markaðsfræði, viðskiptafræði, samskiptum eða skyldum greinum.
- Reynsla af stefnumótun og framkvæmd markaðsstarfs.
- Frumkvæði, hugmyndaauðgi, sjálfstæð vinnubrögð og skipulagshæfni.
- Góð samskipta- og ráðgjafahæfni.
- Þekking á Microsoft CRM-kerfum og markaðsgreiningum er kostur.
- Hæfni til að vinna með þverfaglegum teymum og eiga í samskiptum við fjölbreyttan hóp hagsmunaaðila.
- Góð kunnátta í íslensku og ensku, bæði í rituðu og töluðu máli.
- Góður og hollur matur í hádeginu
- Vellíðunarstyrkur
- Samgöngustyrkur
- Hreyfistyrkur
- Fæðingarstyrkur
- Gleraugnastyrkur
- Símastyrkur
- Símaáskrift og heimatenging













