Origo ehf.
Origo ehf.
Origo ehf.

Sérfræðingur í markaðsmálum

Svið Notendalausna Origo leitar að einstaklingi með brennandi áhuga á markaðsmálum, efnissköpun og nýjustu tækni! Þessi aðili fær tækifæri á að vinna að markaðsetningu á verslunum Origo og fremstu vörumerkjunum á sínu sviði eins og Bose, Lenovo, Sony, Canon, Google og Apple.

Teymisvinna er einkennandi fyrir starfið, en unnið er náið með vörustjórum, sölustýringu og markaðsdeild Origo.

Menntunar- og hæfniskröfur
Menntun sem nýtist í starfi
Reynsla af sambærilegu starfi
Mjög góð færni í rituðu og töluðu máli
Þekking á stafrænni markaðssetningu, samfélagsmiðlum og vefumsjón
Reynsla af notkun Google Ads og Facebook Business Manager kostur
Reynsla af notkun HubSpot eða annars CRM kerfis kostur
Reynsla af myndvinnsluforritum kostur
Frumkvæði, fagmennska og mikil metnaður til að ná árangri
Hugmyndaauðgi, sjálfstæð vinnubrögð og lausnamiðuð hugsun
Góðir samstarfs- og samskiptahæfileikar
Helstu verkefni og ábyrgð
Gæðastýring á rituðu efni fyrir vefverslun, samfélagsmiðla, markpósta o.fl.
Efnissköpun fyrir verslanir, samfélagsmiðla, markpósta o.fl.
Samskipti við áhrifavalda
Stuðningur við söluherferðir
Verkefnastýring viðburða og námskeiða
Árangursmælingar og eftirfylgni
Hugmyndavinna og umbótaverkefni
Auglýsing birt6. janúar 2022
Umsóknarfrestur16. janúar 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Borgartún 37, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar