
Sérfræðingur í mannvirkjagerð
Vilt þú starfa á nútímalegum vinnustað sem leggur áherslu á öfluga miðlun upplýsinga, árangursríkt samstarf við hagaðila og nýsköpun á byggingarmarkaði?
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun leitar að öflugu starfsfólki í teymi starfsumhverfis mannvirkjagerðar. Áherslumál innan teymis eru m.a. endurskoðun byggingarreglugerðar og árangursrík innleiðing byggingarregluverks með því að veita hagaðilum mannvirkjageirans stuðning til að þeir nái árangri við að uppfylla grunnkröfur um mannvirki. Markvisst er stuðlað að aukinni þekkingu og rannsóknum ásamt því að vinna að fræðslu og virku samtali við hagaðila, m.a. í gegnum samstarfsvettvanginn Burð.
Fjölbreytt og krefjandi verkefni eru framundan við þróun á starfsumhverfi mannvirkjagerðar í takt við hlutverk og framtíðarsýn stofnunarinnar.
HMS óskar eftir að ráða sérfræðing mannvirkjagerð.
- Umsjón og þátttaka í vinnu við gerð og miðlun fræðsluefnis um mannvirkjagerð
- Útgáfustjóri leiðbeininga við byggingarreglugerð
- Þátttaka í reglugerðarbreytingum á sviði mannvirkjagerðar
- Byggja upp og viðhalda góðum samskiptum við byggingarfulltrúa sveitarfélaga og fagaðila á sviði mannvirkjagerðar
- Umsjón með móttöku, úrvinnslu og svörun fyrirspurna
- Þátttaka í þróun mannvirkjaskrár
- Háskólamenntun á byggingasviði s.s. arkitektúr, byggingafræði, tæknifræði eða verkfræði er skilyrði
- Reynsla af byggingaframkvæmdum og hönnun er kostur
- Þekking á opinberri stjórnsýslu er kostur
- Löggilding hönnuða er kostur
- Góð greiningar- og skipulagshæfni og reynsla af umsjón verkefna
- Frumkvæði, sjálfstæði og metnaður til að ná árangri
- Góð samskipta- og samstarfshæfni, jákvætt og lausnamiðað viðhorf
- Gott vald á íslensku og ensku
Íslenska
Enska







