Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS)
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS)

Lögfræðingur í regluverki mannvirkjagerðar

Vilt þú starfa á nútímalegum vinnustað sem leggur áherslu á öfluga miðlun upplýsinga, árangursríkt samstarf við hagaðila og nýsköpun á byggingarmarkaði?

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun leitar að öflugu starfsfólki í teymi starfsumhverfis mannvirkjagerðar. Áherslumál innan teymis eru m.a. endurskoðun byggingarreglugerðar og árangursrík innleiðing byggingarregluverks með því að veita hagaðilum mannvirkjageirans stuðning til að þeir nái árangri við að uppfylla grunnkröfur um mannvirki. Markvisst er stuðlað að aukinni þekkingu og rannsóknum ásamt því að vinna að fræðslu og virku samtali við hagaðila, m.a. í gegnum samstarfsvettvanginn Burð.

Fjölbreytt og krefjandi verkefni eru framundan við þróun á starfsumhverfi mannvirkjagerðar í takt við hlutverk og framtíðarsýn stofnunarinnar.

HMS óskar eftir að ráða sérfræðing í regluverki mannvirkjagerðar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón og þátttaka í vinnu við reglugerðarbreytingar á sviði mannvirkjagerðar
  • Lagaleg ráðgjöf og fræðsla á sviði mannvirkjamála til fagsviða HMS, stjórnvalda og hagaðila
  • Undirbúningur stjórnvaldsákvarðana og úrlausn lögfræðilegra álitaefna
  • Byggja upp og viðhalda góðum samskiptum við byggingarfulltrúa sveitarfélaga og fagaðila á sviði mannvirkjagerðar
  • Lögfræðileg álit, ráðgjöf og umsagnir vegna málefnaflokka laga um mannvirki
  • Fræðsla og þjálfun til starfsfólks
  • Þátttaka í þróun mannvirkjaskrár
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Embættis- eða meistarapróf í lögfræði er skilyrði
  • Þekking á stjórnsýslurétti og reynsla af opinberri stjórnsýslu
  • Lögfræðileg þekking og reynsla á sviði mannvirkjagerðar er kostur
  • Góð greiningar- og skipulagshæfni og reynsla af umsjón verkefna
  • Frumkvæði, sjálfstæði og metnaður til að ná árangri
  • Góð samskipta- og samstarfshæfni, jákvætt og lausnamiðað viðhorf
  • Gott vald á íslensku og ensku
Auglýsing birt12. desember 2025
Umsóknarfrestur8. janúar 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Borgartún 21, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar