
Klettur - sala og þjónusta ehf
Saga Kletts og forvera félagsins nær aftur til 1947 og er því óhætt að segja að félagið byggi á traustum grunni sérhæfðrar þekkingar og reynslu. Árið 2010 markaði nýtt upphaf en þá hófst starfsemi Kletts sem tók yfir allan rekstur vélasviðs Heklu. Allar götur síðan hefur Klettur verið leiðandi í sölu og þjónustu sem nær yfir breiða línu vinnuvéla, aflvéla, rafstöðva, lyftara, hjólbarða, vöruflutninga- og hópferðabíla ásamt hleðslukrönum og ábyggingum. Klettur býður einnig upp á ýmsan hliðarbúnað og fylgihluti frá þekktum vörumerkjum.
Helstu vörumerki félagsins eru Caterpillar vinnuvélar, aflvélar, rafstöðvar og lyftarar, Perkins aflvélar og rafstöðvar, Scania vöruflutninga- og hópferðabifreiðar, Scania aflvélar og rafstöðvar, Goodyear, Hankook, Nexen og Maxam hjólbarðar, Ingersoll Rand loftpressur, Mitsubishi gufuaflstúrbínur, Merlo skotbómulyftarar, ZF bátagírar, Hiab hleðslukaranar og gámakrókar, Ausa vinnuvélar, Multione liðléttingar, Trime ljósamöstur, Langendorf vagnar og pallar og Larue snjóblásarar. Félagið hefur starfað í marga áratugi með helstu birgjum sínum og er meðal elstu umboðsaðila þeirra vörumerkja í Evrópu.
Félagið og starfsmenn leggja metnað sinn í að vera leiðandi í sölu og þjónustu á þeim mörkuðum sem félagið vinnur á og að þær vörur og þjónusta sem boðið er uppá hjálpi viðskiptavinum Kletts að ná sem bestum árangri.
Klettur er hluti af Styrkás

Sérfræðingur í loftlausnum
Óskum eftir að ráða vélfræðing eða vélvirkja á verkstæði okkar í Klettagörðum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Bilanagreiningar, viðgerðir og viðhald á Ingersoll Rand loftpressum og loftveitum.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Vélfræðingur, vélvirki, bifvélavirki eða vanur vélaviðgerðum.
- Ekki er gert ráð fyrir sérþekkingu búnaðar en það er kostur
- Góð samskiptafærni og þjónustulund.
- Íslensku og ensku kunnátta.
- Almenn tölvukunnátta og að geta tileinkað sér tækninýjungar.
- Stundvísi.
- Ökuréttindi.
Fríðindi í starfi
- Niðurgreiddur hádegismatur.
- Afsláttur af vörum og þjónustu fyrirtækisins.
- Íþróttastyrkur.
- Sterkt og virkt starfsmannafélag.
Auglýsing birt21. nóvember 2024
Umsóknarfrestur15. desember 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Klettagarðar 8-10 8R, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Almenn ökuréttindiStundvísi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Reykjavík: Meiraprófsbílstjóri á dælubíl - Stífludeild
Íslenska gámafélagið ehf.

Viðhald lyftara og búnaðar í vöruhúsi
Bera hf.

Þjórsársvæði, rekstur og viðhald aflstöðva
Landsvirkjun

Bifvélavirki / handlaginn einstaklingur
Katlatrack ehf

Verkstæði
EAK ehf.

Viltu taka þátt í að móta næstu kynslóð vélstjóra og tæknimenntaðra sérfræðinga?
Tækniskólinn

Starfsmaður í pökkun
Lýsi

Stöðvarstjóri á Selfossi
Frumherji hf

Vélstjóri/ Vélfræðingur óskast í VARMA OG VÉLAVERK
Varma og Vélaverk

Starfsmaður í steypuþjónustu
Jarðboranir

Orkubú Vestfjarða - Ísafjörður - Vélfræðingur
Orkubú Vestfjarða ohf

Móttaka á verkstæði
Aflvélar ehf.