
Sérfræðingur í leigjendamálum
Félagsbústaðir leita að sérfræðingi til að sinna fjölbreyttum verkefnum á þjónustu- og upplýsingasviði félagsins í tímabundnu starfi til eins árs.
Ábyrgðarsvið
Sérfræðingur sinnir leigjendamálum sem varða húsreglnabrot, vanskil, samskiptavanda og önnur mál sem kunna að koma upp. Starfið felur í sér umfangsmikil samskipti við leigjendur og krefst því framúrskarandi samskiptahæfni, ákveðni og faglegra vinnubragða. Sérfræðingur kemur einnig að fjölbreyttum verkefnum og vinnur náið með þjónustumiðstöðvum og Velferðarsviði Reykjavíkurborgar að sameiginlegum verkefnum. Þá ber sérfræðingur ábyrgð á framkvæmd útburða og hefur umsjón með búslóðageymslu.
· Afgreiðsla, úrvinnsla og úrlausn erinda sem varða meðal annars húsreglnabrot, vanskil og samskiptavanda í eignum félagsins.
· Þátttaka í þróunar- og umbótaverkefnum á sviði þjónustu og samskipta við leigjendur og aðra hagsmunaaðila.
· Samskipti og samstarf við leigjendur, þjónustumiðstöðvar Reykjavíkurborgar og aðra samstarfsaðila.
· Umsjón með og framkvæmd útburða.
· Þátttaka í gerð greinargerða, umsagna og annarra faglegra skjala.
· Önnur tilfallandi verkefni.
· Reynsla af sambærilegu starfi á sviði velferðarþjónustu er kostur.
· Framúrskarandi samskiptafærni, hlýlegt viðmót og rík þjónustulund.
· Fagleg vinnubrögð, ákveðni og áhugi á að veita framúrskarandi þjónustu.
· Góðir skipulagshæfileikar og hæfni til að forgangsraða verkefnum.
· Hæfni til að starfa bæði sjálfstætt og í teymi, ásamt vilja til að læra og þróast í starfi.
· Góð almenn tölvukunnátta.
· Góð íslensku- og enskukunnátta; önnur tungumálakunnátta er kostur.
· Áhugi á að bæta skilvirkni og stuðla að umbótum í starfi.
· Frumkvæði, sjálfstæði og ábyrgð í vinnubrögðum.
Menntunarkröfur
· Háskólapróf sem nýtist í starfi.
Íslenska
Enska










