Dómsmálaráðuneytið
Dómsmálaráðuneytið
Dómsmálaráðuneytið

Laust embætti varaformanns kærunefndar útlendingamála

Dómsmálaráðuneytið auglýsir laust embætti varaformanns kærunefndar útlendingamála. Nefndarmenn eru sérfróðir um mál sem falla undir útlendingalög einkum hvað varðar dvöl og búsetu útlendinga hér á landi, málefni flóttamanna og rétt til alþjóðlegrar verndar.

Helstu verkefni og ábyrgð

Varaformaður er staðgengill formanns og sinnir ásamt honum innra starfi nefndarinnar svo sem gerð verklagsreglna, undirbúningi úrskurða nefndarinnar og þróun starfseminnar í þágu gæða og skilvirkni. Að jafnaði úrskurða tveir nefndarmenn í málum sem berast kærunefnd, sbr. 8. gr. laga um útlendinga.   

Menntunar- og hæfniskröfur

Umsækjendur skulu fullnægja skilyrðum 2. mgr. 29. gr. laga um dómstóla nr. 50/2016 auk eftirfarandi hæfniskrafna: 

  • Þekking og reynsla á sviði stjórnsýsluréttar.  
  • Þekking og reynsla af vinnslu úrskurða innan stjórnsýslunnar.  
  • Þekking á málefnum útlendinga kostur. 
  • Rík samskipta- og samstarfshæfni, ásamt hæfni til að leiða faglegt samstarf við ólíka hagaðila.  
  • Fagmennska, frumkvæði, drifkraftur og lausnamiðuð hugsun.  
  • Mjög gott vald á íslensku og ensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti. 
Auglýsing birt24. júní 2026
Umsóknarfrestur3. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Skúlagata 17, 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar