

Embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu laust til umsóknar
Auglýst er laust til umsóknar embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu. Leitað er að öflugum, framsýnum og umbótadrifnum leiðtoga sem hefur sterka hæfni til að leiða fjölbreyttan hóp starfsfólks í gegnum þróun og umbætur, skapa traust og samstöðu og stuðla að faglegri og skilvirkri löggæslu.
Dómsmálaráðherra hefur kynnt að fyrirhugaðar séu breytingar á skipulagi lögreglu. Áform eru um að fækka lögregluembættum úr níu í fjögur til fimm og mynda þannig stærri og öflugri embætti um land allt. Í þessum áformum felst að sameining lögregluembætta á suðvesturhorni landsins verði skoðuð sérstaklega.
Framundan eru því breytingar á skipulagi löggæslu sem kalla á markvissa breytingastjórnun, árangursmiðaða nálgun og getu til að leiða starfsfólk í gegnum umbreytingar. Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu mun gegna stóru hlutverki við þessar breytingar.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu fer með stjórn lögregluliðs í sínu umdæmi. Lögreglustöðvar innan umdæmisins eru fjórar talsins. Hlutverk lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu er að annast daglega stjórn og rekstur lögreglunnar í umdæminu og ber hann ábyrgð á framkvæmd lögreglustarfa innan þess. Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu á sæti í lögregluráði, sem hefur það hlutverk að efla samráð á meðal lögreglustjóra og samhæfa störf lögreglu.
Umsækjendur um embættið skulu fullnægja skilyrðum 2. mgr. 28. gr. lögreglulaga nr. 90/1996.
- Öflug leiðtogahæfni og farsæl reynsla af stjórnun er skilyrði.
- Þekking, reynsla og árangur á sviði rekstrar er kostur.
- Þekking og reynsla af umbóta- og breytingastarfi er kostur.
- Þekking á verkefnum lögreglu er kostur.
- Rík samskipta- og samstarfshæfni.
- Fagmennska, frumkvæði, drifkraftur og lausnamiðuð hugsun.
- Mjög gott vald á íslensku og ensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti.
Íslenska
Enska





