
Stykkishólmsbær
Stykkishólmur hefur á síðustu árum orðið að einum vinsælasta áfanga- og áningarstað landsins. Þar kemur margt til, ef til vill vegur þar þungt metnaður bæjarbúa fyrir að varðveita umhverfi sitt og sögu svo komandi kynslóðir fái notið þeirra á sama hátt og við gerum nú. Sú hugsun endurspeglast hvað best í miðbæ Stykkishólms sem óhætt er að vísa til sem safns gamalla húsa. Stykkishólmsbær fékk Skipulagsverðlaunin 2008, sem veitt eru af Skipulagsfræðifélagi Íslands, fyrir deiliskipulag miðbæjar, stefnu og framfylgd hennar og eru bæjarbúar ákaflega stoltir og þakklátir fyrir þá viðurkenningu.
Sérfræðingur byggingar- eða skipulagsmál
Eyja- og Miklaholtshreppur, Grundarfjarðarbær, Helgafellssveit og Stykkishólmsbær hafa sameinast um uppbyggingarverkefni innan stjórnsýslu og stofnað nýtt svið umhverfis- og skipulagsmála.
Leitað er eftir kraftmiklum sérfræðingi á sviði byggingar- eða skipulagsmála sem verður staðgengill sviðsstjóra og þátttakandi í uppbyggingu sviðsins.
Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi. Kostur ef umsækjandi hefur annað hvort réttindi til að starfa sem skipulags- eða byggingarfulltúi eða að menntun veiti umsækjanda tækifæri til að öðlast réttindi sem skipulags- eða byggingarfulltrúi í kjölfar ráðningar
Þekking á góðum stjórnsýsluháttum og reynsla sem nýtist í starfi er kostur
Reynsla af verkefnastjórnun er kostur
Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og samstarfshæfileikar
Góð tölvukunnátta og þekking á stafrænni þjónustu
Skipulagshæfni, skilvirkni og hæfni til að skapa jákvæða þjónustuupplifun viðskiptavina
Skýr sýn um árangurs- og lausnamiðaða nálgun í starfi
Frumkvæði og fagmennska
Góð færni í íslensku
Einlægur áhugi á metnaðarfullu faglegu starfi á málefnasviðinu
Helstu verkefni og ábyrgð
Sinnir annað hvort hlutverki skipulags- eða byggingarfulltrúa sveitarfélaganna.
Vinnur að faglegu starfi sviðsins í samvinnu við sviðsstjóra, en undir sviðið heyra skipulags- og byggingarmál, verklegar framkvæmdir, eignaumsjón og umhverfisverkefni.
Þátttaka í faglegri þróun þessa nýja sviðs.
Samstarf og ráðgjöf við samstarfsfólk á sviðinu og eftir atvikum fagnefndir sveitarfélaganna og bæjarstjóra/oddvita um verkefni sviðsins.
Samskipti við íbúa, opinberar stofnanir og aðra hagsmunaaðila um málefni sviðsins
Ábyrgð á stjórnsýsluframkvæmd innan skilgreinds starfssviðs sem verður mótað nánar við uppbyggingu sviðsins, sem sérfræðingur mun taka þátt í.
Auglýsing birt10. maí 2021
Umsóknarfrestur17. maí 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Hafnargata 3, 340 Stykkishólmur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Alþjóðlegt sjávarútvegsfyrirtæki leitar að metnaðarfullum sérfræðingi í fjármálateymi
Reyktal þjónusta ehf.

Vatnsaflssérfræðingur
EFLA hf

Skipulags- og byggingarfulltrúi
Hafnarfjarðarbær

Forstöðumaður fasteigna
Háskólinn í Reykjavík

Hugbúnaðarsérfræðingur
VÍS

Sjóðstjóri hlutabréfasjóða hjá Íslandssjóðum
Íslandssjóðir

Product Designer / Engineer | Össur
Embla Medical | Össur

Software Engineer
Treble Technologies

Forstöðumaður tækni og hönnunar
Landsnet hf.

Leiðtogi í umhverfis- og skipulagsmálum
Sveitarfélagið Hornafjörður

Byggingarverk- eða tæknifræðingur
JTV ehf

Byggingartæknifræðingur
Verksýn