

Sendibílstjóri
Bílstjóri óskast í fjölbreyttan sendibílaakstur.
Umsækjendur þurfa að vera hraustir, þjónustulundaðir og íslenskumælandi með hreint sakavottorð.
Vinnan er tvískipt.
Annarsvegar akstur á miðstærðar lyftubíl frá ca 6-9 á morgnanna. Það snýst um að rúlla stæðum inn í matvörubúðir á höfuðborgarsvæðinu og taka tómar stæður tilbaka.
Hinsvegar tilfallandi ferðir fyrir ýmsa fastakúnna og vinna í gegnum sendibílastöð.
Fyrirtækið er með bíla í morgunkeyrslu alla daga vikunnar. Því er um vaktafyrirkomulag að ræða og ég leita að fólki sem hefur kost á að vinna aðra hvora helgi.
Fyrirkomulag:
Unnið er frá ca 6:00-17:00 aðra hvora viku og
ca 8-18 hina vikuna
og þarf viðkomandi að geta skilað a.m.k. fjórum til fimm vöktum á viku eftir samkomulagi. Þar innifalin er önnur hver helgi.
Kröfur:
Meirapróf (eða gamla prófið/5 tonna réttindi) er æskilegt og reynsla af akstri í atvinnuskyni er sömuleiðis kostur. Varkárni, yfirvegun og hæfni í að fara vel með ökutækin eru stórt atriði ásamt kurteisi og hæfni í mannlegum samskiptum . Æskilegur aldur ca 25-55 ára. Annað slagið eru burðarverkefni hluti af vinnudeginum. Því þarf viðkomandi að vera hraustur og þokkalegur til heilsunnar. Ekki að það sé endilega stór hluti af heildarmyndinni en það má reikna með því sem hluti af pakkanum og eitthvað sem reynir reglulega á.
Mjög góð kaffiaðstaða og fínn félagskapur.











