Blue Car Rental
Blue Car Rental
Blue Car Rental

Samfélagsmiðlastjóri/Social Media Manager

Langar þig að leiða og þróa sterka samfélagsmiðla Blue Car Rental?

Við leitum að öflugum og skapandi samfélagsmiðlastjóra til að leiða samfélagsmiðla Blue Car Rental og tengdra vörumerkja.

Í starfinu berð þú ábyrgð á að móta og þróa samfélagsmiðlastefnu fyrirtækisins, skipuleggja og birta efni og tryggja að framsetning endurspegli ímynd og gildi Blue Car Rental. Þú vinnur að því að auka sýnileika vörumerkisins, styrkja tengsl við fylgjendur og styðja við markaðs- og sölumarkmið fyrirtækisins.

Samfélagsmiðlastjóri hefur yfirumsjón með efni á samfélagsmiðlum og stýrir samstarfi við áhrifavalda, bloggara og ljósmyndara. Þá felur starfið einnig í sér þróun og utanumhald affiliate-markaðssetningar. Þú vinnur náið með markaðs- og sölusviði til að tryggja samræmda og árangursríka miðlun á öllum miðlum.

Frekari upplýsingar um Blue Car Rental er hér: Blue.is og Bókunarsíðu Blue

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Yfirumsjón með samfélagsmiðlum allra vörumerkja í eigu Blue Car Rental.
  • Mótun, innleiðing og stýring á stafrænum herferðum á samfélagsmiðlum.
  • Greining á árangri á samfélagsmiðlum.
  • Auka sýnileika og viðhalda góðu orðspori fyrirtækisins á samfélagsmiðlum.
  • Þróa og halda utan um affiliate prógram.
  • Samskipti við áhrifavalda og samstarfsaðila.
  • Þátttaka í stefnumótun og innleiðingu á stafrænu markaðsstefnu fyrirtækisins.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af stafrænni markaðssetningu og samfélagsmiðlastjórnun.
  • Reynsla af stafrænni markaðssetningu á erlendum mörkuðum kostur.
  • Mjög góð kunnátta í ensku og íslensku, bæði í ræðu og riti.
  • Þekking á stafrænum verkfærum, þar með talið PPC, Google Analytics, samfélagsmiðlum, Meta Ads Manager o.fl.
  • Greiningarhæfni og færni í túlkun gagna og mælinga.
  • Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Mjög góð samskiptahæfni og geta til að vinna í teymi.
Fríðindi í starfi

Greiddur símreikningur

Styrkur til kaupa á snjallsíma

Líkamsræktarkort

Bíll í langtímaleigu á sérkjörum

Námsstyrkir vegna háskólanáms eða símenntunar

Ókeypis kaffi, te og snarl

3 tímar hjá sérfræðingi á ári í gegnum Velferðartorg Blue

Auglýsing birt12. mars 2026
Umsóknarfrestur22. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hafnargata 55B, 230 Reykjanesbær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Google AnalyticsPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MarkaðsmálPathCreated with Sketch.Markaðssetning á netinuPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Skipulag
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar