

Sálfræðingur
Sálfræðingur við Náms- og starfsráðgjöf Háskóla Íslands
Við Náms- og starfsráðgjöf Háskóla Íslands (http://hi.is/nshi) er laust til umsóknar 50% starf sálfræðings tímabundið í tvö ár.
Starfið er fjölbreytt, viðfangsefnin áhugaverð og starfsumhverfið gott.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sálfræðileg greining, ráðgjöf og stuðningur við háskólastúdenta.
- Námskeiðahald, ráðgjöf og fræðsla.
- Hópmeðferð varðandi kvíða, þunglyndi, streitu og sjálfstyrkingu.
- Forvarnarstarf, s.s. geðfræðsla fyrir nemendur Háskóla Íslands.
- Áframhaldandi þróun sálfræðiþjónustu fyrir háskólastúdenta.
Hæfniskröfur
- Löggild réttindi sálfræðings.
- Reynsla af hugrænni atferlismeðferð.
- Góð færni í mannlegum samskiptum.
- Góð kunnátta í íslensku og ensku.
- Góð tölvukunnátta.
- Frumkvæði, sveigjanleiki og sjálfstæði í starfi.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.
- Ferilskrá.
- Bréf þar sem áhuga á starfnu er lýst og fjallað um hvað umsækjandi telur sig geta lagt af mörkum til þess.
- Staðfest afrit af prófskírteinum.
- Upplýsingar um 2-3 umsagnaraðila.
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans.
Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.
Starfshlutfall er 50%
Umsóknarfrestur er til og með 23.05.2022
Nánari upplýsingar veitir
María Dóra Björnsdóttir - [email protected] - 525-4315




