
Sálfræðingar óskast til starfa hjá Domus Mentis Geðheilsustöð
Domus Mentis leitar að sálfræðingum til liðs við öflugan og samhentan hóp sérfræðinga. Hjá okkur starfar auk sálfræðinga, félagsráðgjafar, fjölskyldufræðingar, iðjuþjálfar og sérfræðingar á sviði sáttamiðlunar og uppbyggilegrar réttvísi. Þverfaglegt samstarf er mikilvægur hluti af starfseminni og við leggjum ríka áherslu á góðan starfsanda, faglegt samstarf og vinnuumhverfi þar sem fólki líður vel.
Öflugt faglegt umhverfi
Fagleg þróun og símenntun eru stór hluti af starfinu hjá Domus Mentis. Nýir sálfræðingar fá skipulagða móttöku og reglulega einstaklings- og hóphandleiðslu frá reyndum sálfræðingum og sérfræðingum.
Sálfræðingar taka jafnframt þátt í sérhæfðum teymum, meðal annars á sviði áfalla, kvíða og þunglyndis og reiðivanda, auk reglulegrar fræðslu, vinnustofa og faglegra funda. Þannig gefst bæði tækifæri til að byggja upp breiða klíníska reynslu og þróa sérþekkingu á eigin áhugasviðum.
Fjölbreytt klínísk vinna
Til Domus Mentis leitar fjölbreyttur hópur skjólstæðinga með ólíkan geðrænan og sálfélagslegan vanda. Við vinnum meðal annars með áfallatengdan vanda, kvíðaraskanir, þunglyndi, reiðivanda og flóknari klínísk viðfangsefni.
Við erum jafnframt í nánu samstarfi við sveitarfélög, barnavernd, félagsþjónustu og aðrar stofnanir, sem skapar fjölbreytt og áhugaverð klínísk verkefni. Að auki erum við með samninga við opinberar stofnanir, fyrirtæki og félagsamtök.
Við leggjum að sjálfsögðu áherslu á gagnreynda sálfræðimeðferð og sálfræðingar hjá Domus Mentis fá tækifæri til þjálfunar og handleiðslu í aðferðum á borð við HAM, HÚM, NET og atferlisvirkjun.
Við leitum að
Við viljum heyra frá sálfræðingum sem hafa áhuga á klínísku starfi, vilja þróast faglega og kunna að meta gott samstarf. Bæði sálfræðingar sem eru að stíga sín fyrstu skref í klínísku starfi og þeir sem hafa meiri reynslu eru hvattir til að hafa samband.
Bæði fullt starf og hlutastarf koma til greina og er um verktöku að ræða. Umfang starfsins getur að ákveðnu marki tekið mið af aðstæðum og óskum hvers og eins.
Hjá okkur skiptir faglegur metnaður miklu máli, en líka að það sé gott að mæta í vinnuna.
Ef þú hefur áhuga á að verða hluti af teyminu hjá Domus Mentis viljum við gjarnan heyra frá þér fyrir 26. ágúst. Nánari upplýsingar má fá hjá Eddu Sigfúsdóttur, [email protected], og Þóru Sigfríði Einarsdóttur, [email protected].
Íslenska

