Salaskóli
Salaskóli
Salaskóli

Salaskóli-starfsfólk í stuðning & frístund skólaárið ´24-´25

Við í Salaskóla óskum eftir að ráða stuðningsfulltrúa og frístundaleiðbeinendur.

Salaskóli tók til starfa haustið 2001 og er grunnskóli fyrir nemendur í 1.-10. árgangi. Í Salaskóla eru ríflega 500 nemendur og um 100 starfsmenn. Í skólanum er faglegt og metnaðarfullt starf undir einkunnarorðunum vinátta - virðing - samstarf, þar ríkir góður starfsandi og boðið er upp á gott starfsumhverfi. Í störfunum stuðningsfulltrúa og frístundaleiðbeinenda felst stuðningur við nemendur í námi og leik. Fyrri hluta dags er unnið með nemendum í kennslustundum og eftir hádegi í frístundastarfi – til greina kemur að ráða starfsmenn í fullt starf eða hlutastarf sem væri þá ýmist fyrir eða eftir hádegi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Stuðningur við nemendur í námi og leik, inni og úti
  • Vinna samkvæmt stefnu skólans, áætlunum og verkefnalýsingum
  • Samstarf við alla aðila skólasamfélagins um hagsmuni nemenda
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Hæfni í mannlegum samskiptum, þolinmæði og umburðarlyndi
  • Stundvísi og reglusemi
  • Vera tilbúin að vinna eftir stefnu skólans og geta tekið leiðsögn
  • Frumkvæði og jákvæðni
  • Góð tök á íslensku bæði í máli og riti
Fríðindi í starfi

Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins.

Auglýsing stofnuð20. apríl 2024
Umsóknarfrestur4. maí 2024
Staðsetning
Versalir 5, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.Þolinmæði
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar