Íslenska gámafélagið ehf.
Íslenska gámafélagið ehf.
Íslenska gámafélagið ehf.

Reykjavík: Bílstjóri á tunnuþvottabíl

Við hjá Íslenska gámafélaginu leitum að öflugum og metnaðarfullum einstaklingi til að ganga til liðs við frábært teymi okkar í ört vaxandi starfsemi.

Viðkomandi þarf að vera með góðan heildarskilning á verkefnum og getu til að halda yfirsýn í daglegu starfi. Starfsmaður þarf að vinna sjálfstætt og sýna frumkvæði í starfi. Starfið er fjölbreytt og viðkomandi mun bæði vera að sinna viðskiptavinum ÍGF sem og starfseminni sjálfri.

Viðkomandi þarf að vera með gild ökuréttindi (B) og C/CE réttindi er kostur.

Starfsmaður er ráðinn í 8 tíma vinnudag. Þess utan er yfirvinna í boði en hún er valfrjáls. Hefðbundinn vinnudagur er frá sirka 07:00-17:00.

Ef þú tikkar í alla þessa kassa og hefur áhuga á að koma að vinna hjá snilldar fyrirtæki sem hugsar í lausnum og umhverfismálum þá endilega sendu okkur umsókn.

Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þjónusta viðskiptavini okkar
  • Þrif og sóttgreinsun sorptunna og kara
  • Akstur á höfuðborgarsvæðinu og umsjón með tunnuþvottabíl
  • Dagleg yfirferð og umhirða búnaðar og tækja
  • Góður skilningur, verkvit og með góða yfirsýn
  • Þátttaka í umbótum á ferlum sem stuðla að sífellt betri upplifun viðskiptavina okkar
  • Önnur tilfallandi verkefni tengd deildinni og starfseminni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Bílpróf skilyrði (B)
  •  C eða CE kostur
  • Vinnuvélaréttindi á lyftara (skilyrði)
  • Rík þjónustulund og færni í mannlegum samskiptum og jákvæðni
  • Íslensku kunnátta
  • Sjálfstæð, ábyrg, skipulögð og skjót vinnubrögð
  • Skipulagshæfileikar
  • Stundvísi er skilyrði 
  • Reynsla af svipuðum störfum er kostur en ekki skilyrði.
  • Lágmarksaldur er 20 ára
Fríðindi í starfi
  • Heilsuefling, s.s. heilsufarsskoðun, bólusetning, aðgangur að sálfræðiþjónustu, heilsueflandi fræðsla.
  • Ýmsir styrkir, s.s. íþróttastyrkur, fræðslustyrkur.
  • Öflugt fræðslustarf
  • Vinalegt starfsumhverfi og tækifæri til að vinna með sterku teymi
  • Fjölskylduvænn vinnustaður með virkt starfsmannafélag
Auglýsing birt20. maí 2026
Umsóknarfrestur5. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Kalkslétta 1, 162 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn ökuréttindiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar