Pósturinn
Pósturinn
Pósturinn

Seyðisfjörður - Bílstjóri í sumarstarf

Pósturinn leitar að starfsmanni í hlutastarf við bréfadreifingu, útkeyrslu sendinga til heimila og fyrirtækja og önnur tilfallandi störf á Seyðisfirði á Austurlandi.

Vinnutími er alla virka daga kl. 8:00-16:00 frá 22. júní fram í miðjan ágúst 2026.

Hæfnikröfur:

  • Bílpróf er skilyrði
  • Íslensku- eða enskukunnátta nauðsynleg
  • Almenn tölvukunnátta
  • Rík þjónustulund og góð samskiptafærni
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Jákvæðni og lausnamiðuð hugsun

Umsóknarfrestur er til og með 3. júní. Öllum umsækjendum verður svarað og farið er með umsóknir sem trúnaðarmál.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Árni Kristinsson, rekstrarstjóri - í tölvupósti [email protected].

Hjá Póstinum starfar lausnamiðað starfsfólk sem tekur fagnandi á móti síbreytilegum áskorunum þar sem liðsheild, þjálfun og góður starfsandi er í forgrunni. Pósturinn leggur sitt lóð á vogarskálar til að stuðla að sjálfbærni og hefur uppfyllt öll markmið Grænna skrefa. Pósturinn er jafnlaunavottað fyrirtæki.

Auglýsing birt20. maí 2026
Umsóknarfrestur3. júní 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
ÍslenskaÍslenska
Valkvætt
Grunnfærni
Staðsetning
Kaupvangur 6, 700 Egilsstaðir
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Útkeyrsla
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar