Reykhólahreppur
Reykhólahreppur
Reykhólahreppur

Reykhólaskóli auglýsir eftir deildarstjóra á leikskóla

Deildarstjóri leikskóla 100% starf (næsti yfirmaður er skólastjóri).

Skólinn er samrekinn leik-, grunn- og tónlistarskóli undir einu þaki. Í skólanum eru um 50 nemendur, þarf af 14 nemendur í leikskóladeild og þrír starfsmenn á gæðatíma. Reykhólar er sveitarfélag með um 240 íbúa og þar af býr um helmingur þeirra í þéttbýlinu á Reykhólum. Á Reykhólum er að finna margvíslega þjónustu.

Deildarstjóri er hluti af stjórnendateymi skólans og þarf að hafa góða samstarfs- og samskiptahæfni, vera sveigjanlegur og tilbúinn að takast á við krefjandi en gefandi verkefni.

Helstu verkefni og ábyrgð

●      Að vinna að uppeldi- og menntun samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra.

●      Starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá og skólastefnu Reykhólahrepps.

●      Að bera ábyrgð á uppeldis- og menntastarfi á deildinni.

●      Stjórnun, skipulagning, mönnun og mat á starfi deildarinnar í samráði við skólastjóra.

●      Að bera ábyrgð á að unnið sé eftir skólanámskrá.

●      Að bera ábyrgð á foreldrasamstarfi.

●      Sinnir þeim verkefnum er varðar uppeldi og menntun barnanna og stjórnun deildarinnar sem yfirmaður felur honum.

Menntunar- og hæfniskröfur

●      Kennaramenntun og leyfisbréf til kennslu.

●      Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með börnum.

●      Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum.

●      Frumkvæði, sjálfstæði og sveigjanleiki í vinnubrögðum.

●      Reglusemi og samviskusemi.

●      Góð íslenskukunnátta.

●      Ef ekki fæst fagmenntaður deildarstjóri til starfa er leitað eftir einstaklingi með aðra menntun og/eða reynslu sem nýtist í starfið.

Fríðindi í starfi

Sá sem ráðinn verður í starfið nýtur jafnframt ýmissa hlunninda, þar á meðal flutningastyrks, gjaldfrjáls leikskóla og líkamsræktarstyrks. Svæðið býður upp á einstaka nálægð við náttúru og rólegt, fallegt umhverfi.

Auglýsing birt19. maí 2026
Umsóknarfrestur3. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Reykhólaskóli
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar