
REKSTRARSTJÓRI
Samherji leitar að metnaðarfullum og skipulögðum aðila í starf rekstrarstjóra Fiskþurrkunar Samherja á Laugum í Reykjadal.
Rekstrarstjóri er hluti af öflugu teymi vinnustaðarins og ber ábyrgð á daglegri starfsemi og rekstri.
Samherji útvegar íbúðarhúsnæði á staðnum fyrir þann sem er ekki búsettur á Laugum.
- Yfirumsjón og ábyrgð á rekstri
- Dagleg stjórnun og verkstjórn í fiskþurrkun
- Stuðla að og byggja upp góða vinnustaðamenningu
- Aðkoma að gæða-, öryggis- og viðhaldsmálum
- Samskipti við söludeild og aðra deildir Samherja
- Stefnumótun og áætlanagerð
- Ýmis önnur verkefni í samráði við samstarfsfólk og stjórnendur
- Menntun og/eða haldbær reynsla sem nýtist í starfi
- Rík færni til samskipta og samstarfs
- Leiðtogahæfni og metnaður í starfi
- Skipulagshæfni og lausnamiðuð hugsun
- Góð tölvukunnátta og tæknilæsi kostur
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Hjá fiskþurrkun Samherja á Laugum fer fram þurrkun hausa og hryggja sem til falla hjá fiskvinnslu félagsins á Akureyri.
Starfsmenn á staðnum eru um tuttugu og búa þeir yfir víðtækri þekkingu á þurrkun afurða.
Starfsemin fer fram alla virka daga og er stöðug allan ársins hring. Vinnslan er vel búin, bæði hvað varðar tækni og aðbúnað starfsfólks.
Samherji útvegar íbúðarhúsnæði á staðnum fyrir þann sem er ekki búsettur á Laugum.
Laugar er mikill skólastaður frá gamalli tíð, þar eru bæði leikskóli og framhaldsskóli.
Dagvöruverslun er á Laugum.
Aðstæður til íþróttaiðkunar og útivistar eru góðar, íþróttahús og frábær sundlaug.
Stutt er í þekktar náttúruperlur, svo sem Mývatn og Goðafoss.
Frá Laugum til Akureyrar eru 48 kílómetrar og til Húsavíkur 40 kílómetrar.