
atNorth
atNorth hefur frá 2009 verið brautryðjandi í hönnun, uppbyggingu og rekstri hátæknigagnavera á Íslandi, Svíþjóð, Finnlandi og Danmörku. Meðal viðskiptavina atNorth eru alþjóðleg fyrirtæki og stofnanir sem starfa í fjölmörgum greinum, svo sem við rannsóknir, í heilbrigðisgeiranum, í fjármálaiðnaði og veðurfræði, sem nýta þjónustu atNorth til þess að vinna gögn með hámarks afköstum á hagkvæman og umhverfisvænan hátt.
Með staðsetningu gagnavera atNorth á Norðurlöndunum getur fyrirtækið nýtt umhverfisaðstæður svo sem loftslag og nýtingu hita sem myndast í gagnaverunum til að ná fram betri orkunýtingu en þekkist annars staðar við rekstur gagnavera, ásamt því að knýja gagnaverin með endurnýjanlegri orku. Hringrásarhagkerfið sem byggir á grunni endurnýjanlegrar orku og hagkvæmrar orkunýtingar er haft að leiðarljósi við hönnun gagnavera atNorth.
Höfuðstöðvar atNorth eru í Reykjavík, en fyrirtækið rekur sjö gagnaver á Norðurlöndum. Á árinu 2024 verða tvö ný gagnver tekin í notkun í Finnlandi og Danmörku. Frekari upplýsingar um atNorth er að finna á heimasíðu fyrirtækisins atnorth.com og eins má fylgja atNorth á Linkedin og Facebook.
Rafvirki / Rafmagnssérfræðingur
atNorth heldur áfram að stækka starfsemi sína á Akureyri og leitar að kraftmiklum reynslubolta í starf í rafvirkja/rafmagnssérfræðings.
Við kunnum að meta góða liðsfélaga sem eru áhugasamir um að læra og vaxa í heimi gagnavera og gervigreindar.
Áreiðanleg rafkerfi eru mikilvægur hlekkur í starfsemi gagnavera okkar og mikilvægt að uppsetning þeirra, viðhald og rekstur séu með skilvirkum og öruggum hætti.
Sem rafvirki hjá atNorth verður þú hluti af öflugu teymi sem sér um rekstur og viðhald á tæknilega krefjandi innviðum gagnaversins.
Starfið býður upp á fjölbreytt verkefni þar sem öryggi, gæði og áreiðanleiki eru í forgrunni.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sinna almennu viðhaldi, breytingum og uppsetningu á búnaði og kerfum í gagnaverinu
- Annast uppsetningu, eftirlit og viðhald á rafbúnaði og öðrum tæknikerfum
- Framkvæma skipulagt fyrirbyggjandi viðhald og reglubundið eftirlit samkvæmt verklagsreglum og viðhaldsáætlunum
- Taka þátt í greiningu, bilanaleit og viðgerðum á rafmagns- og stoðkerfum gagnaversins
- Styðja við framkvæmdir, breytingaverkefni og daglegan rekstur með tæknilegri sérfræðiþekkingu
- Taka virkan þátt í þróun og endurbótum á verkferlum, vinnulagi og öryggisstöðlum
- Veita viðskiptavinum faglega þjónustu og vinna úr beiðnum með skilvirkum hætti
- Styðja við gangsetningu nýrra kerfa og búnaðar
- Sinna öðrum verkefnum í samráði við stjórnendur og samstarfsfól
Menntunar- og hæfniskröfur
- Sveinspróf í rafvirkjun eða sambærileg menntun á raf- og tæknisviði
- Viðbótarmenntun eða sérhæfing á tæknisviði er kostur
- Þekking og reynsla af lágspennukerfum
- Góð þekking á virkni rafkerfa, stjórnkerfa og tengdum tæknibúnaði
- Reynsla af rekstri, viðhaldi eða bilanagreiningu tæknikerfa er kostur
- Góð samskiptafærni og hæfni til að vinna náið með samstarfsfólki, verktökum og viðskiptavinum
- Sjálfstæð, skipulögð og fagleg vinnubrögð ásamt frumkvæði og lausnamiðaðri hugsun
- Jákvætt umbótahugarfar, rík öryggisvitund og sterk þjónustulund
- Góð færni í ensku, bæði töluðu og rituðu máli
- Hreint sakavottorð
Helstu kostir þess að vinna hjá atNorth eru
- Við tryggjum að þú fáir viðeigandi þjálfun, símenntun og aðgang að þekkingu varðandi rekstur gagnavera
- Heilsumiðað hugarfar með markmið um jafnvægi starfs og einkalífs
- Íþróttastyrkur til rækta líkama og sál
- Skemmtinefnd sem heldur stuðinu gangandi
- Veitingaþjónusta send á vinnustaðinn
- Fjarskiptapakki og símastyrkur
- Alþjóðlegur vinnustaður með fjölmenningu
- Tækifæri til þess að ferðast og kynnast öðrum gagnaverum okkar á Norðurlöndunum
Auglýsing birt14. júlí 2026
Umsóknarfrestur15. ágúst 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Rangárvellir 150130, 603 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
FagmennskaRafvirkjunSjálfstæð vinnubrögðSkipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Rafvirki
DTE

Enercon óskar eftir að ráða rafvirkja.
ENERCON Iceland ehf.

Forritari / Sérfræðingur í hússtjórnarkerfum
Öryggismiðstöðin

Assembly Technician
Laki Power

Sölustjóri sérverkefna óskast til Sindra, Kópavogi
SINDRI

Rafmagnsverkfræðingur / Rafmagnstæknifræðingur
Hagvangur

Electrician – Þjórsár Area
Ístak hf

Rafvirki
Ístak hf

Rafvirkjar óskast – Vertu hluti af öflugu teymi Gaflara
Gaflarar ehf.

Rafvirki / Electrician
Neisti Rafverktakar ehf.

Rafkló leitar að öflugum rafvirkja
Rafkló

Ert þú rafvirki ?
Kaplar ehf