
SINDRI
Sindri flytur inn og selur verkfæri, vinnuföt , loftpressur, og festingavörur frá þekktum framleiðendum s.s. Atlas Copco, DeWalt, Blaklader, Contracor, Toptul, Fabory og Ridgid.
Í dag bíður Sindri uppá allt sitt vöruúrval á einum stað að Smiðjuvegi 11 undir merkjum Sindra en vörur frá Sindra eru einnig fáanlegar í verslunum Johan Rönning á Akureyri, Reyðarfirði, Selfossi og í Reykjanesbæ.
Fyrirtækið var stofnað 1949 af Einari Ásmundssyni og fjölskyldu hans með það markmið að flytja inn stál, byggingavörur og verkfæri fyrir ört vaxandi byggingarmarkað á Íslandi. Á þessum tíma hefur fyrirtækið á eignast stóran hóp traustra viðskiptavina en helstu viðskiptavinir Sindra eru iðnfyrirtæki, verkstæði og einstaklingar.
Sindri er verslunar- og þjónustufyrirtæki á sviði byggingalausna, festinga, véla, verkfæra og vinnufatnaðar. Fyrirtækið var stofnað árið 1949 og er í dag hluti af Fagkaupum ehf.
Fagkaup rekur ásamt Sindra verslunar- og þjónustufyrirtækin Johan Rönning, Vatn & veitur, S. Guðjónsson, Áltak, K.H.Vinnuföt, Varma og Vélaverk, Ísleif, Hagblikk, DS lausnir, K.Þorsteinsson og co og Fossberg
Hjá Fagkaupum starfa rúmlega 300 starfsmenn í Reykjavík, Fjarðabyggð, Reykjanesbæ, Hafnarfirði, Grundartanga, Selfossi og á Akureyri.
Höfuðstöðvar félagsins eru að Klettagörðum 25 í Reykjavík.
Fagkaup starfrækir vottað jafnlaunakerfi og hefur skuldbundið sig til að greiða jöfn laun fyrir sömu eða jafnverðmæt störf.
Unnið er að jákvæðu, hvetjandi og öruggu starfsumhverfi þar sem vellíðan starfsfólks er höfð að leiðarsljósi.

Sölustjóri sérverkefna óskast til Sindra, Kópavogi
Sindri óskar eftir að ráða öflugan sölustjóra í sérhæfð söluverkefni, m.a. á loftpressum og rafstöðvum. Sindri sérhæfir sig í sölu og þjónustu til fagfólks á sviði verkfæra, vinnufata og rekstrarvöru og er hluti af Fagkaupum.
Um er að ræða fjölbreytt og áhugavert starf sem reynir m.a. á frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
Fagkaup leggur mikið upp úr góðu vinnuumhverfi þar sem góður hópur starfsfólks hefur það að markmiði að veita framúrskarandi þjónustu til viðskiptavina og fagfólks.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sala og ráðgjöf á loftpressum og rafstöðvum
- Uppbygging og viðhald viðskiptasambanda
- Kynningar til viðskiptavina
- Greining á þörfum viðskiptavina
- Þátttaka í innkaupa og ákvörðunarferlum
- Náin samvinna við þjónustuverkstæði
- Tilboðsgerð
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Sveinspróf í vélvirkjun og/ eða reynsla úr sambærilegu starfi er kostur.
- Sveinspróf í rafvirkun kostur
- Rík þjónustulund
- Stundvísi og góð framkoma
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Snyrtimennska
- Góð íslenskukunnátta.
Fríðindi í starfi
- Líkamsræktarstyrkur
- Niðurgreiddur hádegismatur
- Samgöngustyrkur
- Árleg heilsufarsmæling
Auglýsing birt3. júlí 2026
Umsóknarfrestur25. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Smiðjuvegur 11, 200 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
Almenn ökuréttindiFrumkvæðiJákvæðniSölumennskaStundvísiÞjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Reykjavík: Bifvélavirki/vélavirki - Car Mechanic
Íslenska gámafélagið ehf.

Bifvélavirkjar - Akureyri
Höldur

Rafvirkjar óskast – Vertu hluti af öflugu teymi Gaflara
Gaflarar ehf.

Tæknimaður / Maintenance Technician
Alvotech hf

Vélamaður-vélvirki
Golfklúbbur Reykjavíkur

Rafvirki / Electrician
Neisti Rafverktakar ehf.

Enercon óskar eftir að ráða rafvirkja.
ENERCON Iceland ehf.

Rafkló leitar að öflugum rafvirkja
Rafkló

Rafvirki / Rafmagnssérfræðingur
atNorth

Öryggisfulltrúi / Rafvirki
atNorth

Electrician – Þjórsár Area
Ístak hf

Rafvirki
Ístak hf