Rafholt ehf.
Rafholt ehf. var stofnað árið 2002 og er í dag einn stærsti atvinnuveitandi á sviði rafverktöku á Íslandi og eru starfsmenn fyrirtækisins 150 talsins. Rafholt var valið í úrvalshóp Creditinfo fyrir árið 2023 sem eitt af framúrskarandi fyrirtækjum ársins, tólfta árið í röð og undirstrikar það styrkleika fyrirtækisins á annars sveiflukenndum markaði.
Hjá Rafholt starfa rafvirkjar, tæknimenn og verkfræðingar með áratuga reynslu og sérfræðiþekkingu á sviði tölvu-, innbrots-, bruna-, og loftræstikerfa ásamt því að búa yfir sértækum tæknibúnaði og gæðavottunum á sviði almennra raflagna, ljósleiðaratenginga og fjarskiptakerfa.
Verkefni fyrirtækisins hafa verið fjölbreytt frá stofnun 2002, s.s. loftræsti- og stýrikerfi Hörpu, Björgunarmiðstöðin í Skógarhlíð, Bláa Lónið, Stolt Sea Farm, Verne Global, Bláa Lónið Retreat, stækkun Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar og Iceland Parliament Hotel svo fá dæmi séu tekin.
Rafholt hefur einnig gert þjónustusamninga við mörg af framsýnustu fyrirtækjum landsins, s.s. Björgunarmiðstöðina í Skógarhlíð, Verne Global, Eik Fasteignafélag, Reginn, Húsasmiðjuna, FLE, Héðinn og Hörpu.
Hjá Rafholt starfar öflug sveit á loftnets- og fjarskiptasviði. Deildin býr yfir öflugum tækjabúnaði til að klára verkefni við erfiðar aðstæður. Undanfarin ár hefur eftirspurn eftir sérhæfðum aðilum á sviði verktöku á fjarskiptasviði aukist til muna og árið 2009 tók Rafholt yfir alla þjónustu við viðskiptavini Mílu á Suðurnesjum.
Rafholt hefur unnið náið með Mílu við ljósnetsvæðingu á landsvísu. Árið 2011 gerði Rafholt þjónustusamning við Vodafone um uppsetningu og viðhald á heima- og fyrirtækjatengingum á Suðurnesjum, þjónustað kjarnastarfssemi Farice og Danice á Íslandi og sinnt uppsetningu og viðhaldi á 2G/3G/4G búnaði úti um allt land fyrir Vodafone, Símann og Nova í verktöku við góðan orðstýr. Rafholt sinnir öllum kjarnatatengingum fyrir Verne Global.
Rafvirki í þjónustudeild
Vegna góðrar verkefnastöðu leitum við að vönum rafvirkjum í þjónustudeild. Viðkomandi þarf að vera vanur að vinna sjálfstætt og í teymi og hafa áhuga á því að tileinka sér nýjungar.
Rafholt sinnir þjónustu við fyrirtæki og stofnanir. Má þar helst nefna Mílu, Vodafone, Nova, Símann, Neyðarlínuna, Björgunarmiðstöðina í Skógarhlíð, Verne Global, Eik Fasteignafélag, Húsasmiðjuna, Héðinn, Nathan og Olsen, Hörpu Tónlistarhús og FLE svo fá dæmi séu tekin.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Bilanagreining og úrvinnsla
- Nýlagnir
Menntunar- og hæfniskröfur
- Sveinspróf eða sambærileg menntun
- Reynsla í faginu
- Hæfi í mannlegum samskiptum
- Skipulagshæfileikar
Fríðindi í starfi
- Hádegismatur
- Fjölbreytt verkefni
- Fatnaður
- Öflugt starfsmannafélag
Auglýsing stofnuð19. apríl 2024
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálakunnátta
ÍslenskaFramúrskarandi
EnskaMjög góð
Staðsetning
Smiðjuvegur 8, 200 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiMannleg samskiptiRafvirkjunSjálfstæð vinnubrögðSkipulagSveinsprófVinna undir álagiÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)
Rafvirki
Frost
Loftstokkahreinsun. 17:00-21:00
Lofstokkaþjónustan
Handlaginn maður - Viðgerðarmaður
Heitirpottar.is
Sumarstarf í Vettvangsþjónustu
Míla hf
Rafvirki /rafvélavirki
Eimskip
Þjónustusérfræðingur í fiski
Marel
Viðgerðarmaður heimilistækja
Ormsson ehf
Viðgerðarmaður / Mechanics
Olíudreifing
Orkubú Vestfjarða - Rafvirki
Orkubú Vestfjarða ohf
Rafvirkjar/Tæknimenn óskast til starfa
Fagtækni hf
Tæknistarf á Austurlandi
Securitas
Rafvirki
IKEA