
Orka náttúrunnar
Orka náttúrunnar framleiðir ekki bara umhverfisvæna orku fyrir heimili, fyrirtæki og farartæki heldur leggur líka ríka áherslu á rannsóknir og nýsköpun til að tryggja komandi kynslóðum betri lífsgæði.
Vernda, styrkja og endurheimta er grunnstefið í umgengni ON við náttúruna og er stolt starfsfólksins.
Orka náttúrunnar hefur sett sér það markmið að verða kolefnishlutlaust árið 2030. Mörg skref hafa verið tekin í þá átt og hafa sömuleiðis mörg verkefni, sem unnin eru í samstarfi við okkar fremsta vísindafólk, hlotið verðskuldaða athygli víða um heim.

Rafvirki
Við leitum að liðsauka í teymið okkar á rafmagnsverkstæði ON sem sinnir fjölbreyttum, skemmtilegum og krefjandi verkefnum í rekstri, eftirliti og viðhaldi búnaðar á virkjanasvæðum okkar á Hellisheiði, Nesjavöllum og Andakíl.
Í virkjunum okkar framleiðum við rafmagn til allra landsmanna og heitt vatn fyrir íbúa höfuðborgarsvæðisins.
Ef þú ert metnaðarfullur rafvirki þá gæti áhugi þinn og þekking nýtst í fjölbreyttum verkefnum á virkjanasvæðum ON.
Boðið er upp á akstur frá höfuðstöðvum ON í Reykjavík, Þorlákshöfn og frá Selfossi/Hveragerði.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þátttaka í nýframkvæmdum á virkjanasvæðum ON
- Hlutverk í spennandi umbótaverkefnum
- Bilanagreiningar og ástandsskoðanir
- Umsjón og eftirfylgni með störfum verktaka
- Viðhaldsverkefni sem tengjast raforkuframleiðslukerfum og húskerfum virkjana
- Lykilhlutverk við að viðhalda sterkri öryggismenningu ON
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af iðnaðarrafmagni, s.s. úr stóriðju, virkjunum eða sambærilegu er kostur
- Reynsla af smá- og háspennu er sömuleiðis kostur
- Rík öryggisvitund er skilyrði
- Frumkvæði, lausnarmiðuð hugsun og jákvæðni
- Sveinspróf í rafvirkjun/rafveituvirkjun er skilyrði
Umsókn um starfið skal fylgja ferilskrá.
Auglýsing birt26. maí 2025
Umsóknarfrestur8. júní 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn

Nauðsyn
Staðsetning
Hellisheiðarvirkjun
Nesjavallavirkjun 170925, 801 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
Mannleg samskiptiMetnaðurRafveituvirkjunRafvélavirkjunRafvirkjun
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Sérfræðingur í bílabreytingum fyrir fatlað fólk
Öryggismiðstöðin

Rafvirkjar
Ísorka

Vélvirki á verkstæði
Rúko hf

Rafvirki óskast til starfa.
Lausnaverk ehf

Rafvirki - Set á Selfossi
Set ehf. |

Rafvirki óskast til starfa
Heitirpottar.is

Rafvirki eða Rafvirkjanemi.
Rafgeisli ehf.

Verkefnastjóri stórnotendadeild
Rafal ehf.

Sérfræðingur í vélarafmagni
Íslyft / Steinbock þjónustan ehf

Þjónustumaður við kæli- og frystikerfi á Akureyri
Frost

Sölumaður í Fagverslun
Rafkaup

Áhugavert og krefjandi starf fyrir rafvirkja
Norðurál