
Securitas
Securitas er þjónustufyrirtæki og er starf okkar að auka öryggi viðskiptavina með gildin okkar að leiðarljósi sem eru árvekni, heiðarleiki og hjálpsemi.
Hjá okkur starfa um 500 manns, flestir starfa á höfuðborgarsvæðinu en Securitas heldur úti þremur útibúum, á Akureyri, Eskifirði og Reykjanesi. Starfsfólkið samanstendur af fjölbreyttum og öflugum hóp fólks með ýmiskonar bakgrunn og menntun. Við leggjum mikið upp úr góðum anda á vinnustaðnum, jákvæðum samskiptum og búum þannig til umhverfi sem okkur öllum líður vel í. Umhverfið okkar er allt í senn krefjandi og skemmtilegt og hér er góð liðsheild sem skilar sér í meiri árangri og líflegri menningu og leggjum við mikla áherslu á samvinnu og fagmennsku. Það er gaman í vinnunni, mikið hlegið og við hjálpumst öll að við að gera dag hvers annars betri.
Securitas leggur áherslu á að skapa starfsfólki tækifæri til að þróast í starfi og takast á við krefjandi verkefni sem eflir það og styrkir. Við erum stolt af því hversu margir hafa fengið að vaxa og þróast í starfi hjá Securitas, en hér er möguleiki á öflugri starfsþróun og tækifæri til að fylgjast með því sem er að gerast í starfseminni á hverjum tíma.
Við leggjum okkur fram við að allir njóti jafnra tækifæra á vinnustaðnum og metum allt starfsfólk að verðleikum. Við tryggjum það að einstaklingum sé ekki mismunað á grundvelli kyns, þjóðernis, kynþáttar, kynhneigðar, trúar eða annarra þátta.

Píparar
Við leitum að drífandi einstaklingum sem hafa brennandi áhuga á tækni og hafa reynslu í pípulögnum.
Starfið felst í að færa fólki og fyrirtækjum nýja tækni inn fyrir þeirra dyr, með því að skipta út eldir mælum fyrir snjallmæla.
Menntunar- og hæfniskröfur
3ja ára reynsla í pípulögnum
Frumkvæði og metnaður til að takast á við krefjandi verkefni
Þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
Góð tölvukunnátta
Góð færni í íslensku
Ökuréttindi og hreint sakavottorð
Helstu verkefni og ábyrgð
Niðurtekt og uppsetning mæla
Gangsetning og prófun
Skráningar í viðskiptakerfi
Önnur tilfallandi verkefni
Auglýsing birt10. maí 2022
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Skeifan 8, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Almenn ökuréttindiMetnaðurPípulagningarPípulagnirÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Þjónustufulltrúi fasteignaþjónustu
Umhverfis- og skipulagssvið

Starfsmaður í hreinlætistækjadeild - BYKO Breidd
Byko

Við leitum að góðum pípara
Mosfell ehf.

Pípari
Heimamenn ehf.

Starfsmaður í áhaldahús
Reykhólahreppur

Píparai með reynslu óskast / Experienced plumber wanted
Eldfoss pípulagnir ehf.

Óskum eftir pípara til starfa
MT Ísland

Söludrifinn starfsmaður í sölu og afgreiðslu óskast
Málmsteypan

Stálsuðumaður / Steel Welder / Stalsvejser / Spawacz stali / Zavarivač čelika
VikNordik ehf.

Pípari óskast til starfa hjá Eignabyggð ehf
Eignabyggð ehf.

Starf í tæknideild SS á Hvolsvelli
SS - Sláturfélag Suðurlands

Pípari
A til Ö lagnir ehf