
OK
OK samanstendur af gríðarlega öflugu starfsfólki, en þar sameinast eldmóður, reynsla og þekking starfsfólks sem setur þarfir viðskiptavina í forgang.
OK hefur að skipa öflugu teymi reyndra sérfræðinga á flestum sviðum upplýsingatækni með langa reynslu af ráðgjöf, rekstri, þjónustu og innleiðingu lausna hjá flestum af stærstu og kröfuhörðustu fyrirtækjum og stofnunum landsins ásamt stórum erlendum viðskiptavinum.
Vinnustaðurinn er krefjandi og skemmtilegur þar sem starfsmenn eru hvattir til að vera sjálfstæðir í starfi og hafa áhrif á eigið starfsumhverfi.
Hjá OK starfar samhentur hópur fólks og er kapp lagt á að viðhalda góðum starfsanda, en það hefur skilað sér í ánægðu starfsfólki sem hefur fengið tækifæri til að vaxa og dafna í leik og starfi.
OK hlaut viðurkenninguna Fyrirmyndarfyrirtæki VR 2024 sem veitt er fyrirtækjum fyrir framúrskarandi vinnuumhverfi og starfsanda, en fyrirtækið hefur hlotið þá viðurkenningu fjögur ár í röð.

OK leitar að tæknimanni í hljóð- og myndlausnum
OK leitar að áhugasömum einstakling til að bætast við frábært teymi okkar í hljóð- og myndlausnum.
Starfið hentar einkar vel þjónustuliprum einstaklingum sem hafa áhuga á tækni, eru handlagnir og tilbúnir að ganga úr skugga um að lausnir virki áreiðanlega og tryggja gæðakröfur.
Hjá OK starfar fjölbreyttur hópur fólks og hvetjum við öll sem uppfylla hæfnikröfur og hafa áhuga á starfinu til að sækja um, óháð kyni.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Uppsetning á hljóð- og myndlausnum í fundarherbergum, ráðstefnusölum og öðrum vinnurýmum
- Tæknileg hönnun sértækra lausna sem uppfylla þarfir viðskiptavina, þar á meðal val á búnaði og samþætting við önnur kerfi
- Prófanir og tryggja að lausnir virki áreiðanlega og uppfylli gæðakröfur
- Taka þátt í skipulagningu og samhæfingu verkefna með öðrum teymum
- Fylgjast með nýjustu lausnum til þess að bæta þjónustu og upplifun viðskiptavina
- Halda góðum tengslum við framleiðendur og birgja til að tryggja hagkvæmar og áreiðanlegar lausnir.
- Þjálfun notenda
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Nám í kerfisstjórnun eða önnur menntun sem nýtist í starfi er kostur
- Þekking á Microsoft Teams Room fundarherbergislausn
- Reynsla af uppsetningu búnaðar
- Nákvæmni í vinnubrögðum
- Hreint sakavottorð er skilyrði
- Bílpróf er skilyrði
- Öguð og sjálfstæð vinnubrögð
- Geta til að vinna í hóp og vera hluti af teymi
- Góð færni í íslensku, bæði skrifuðu og töluðu máli
- Góð færni í ensku, bæði skrifuðu og töluðu máli
- Umsækjendur þurfa að hafa náð 20 ára aldri
Auglýsing birt6. janúar 2026
Umsóknarfrestur18. janúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Skútuvogur 2, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Fljót/ur að læraFrumkvæðiHeiðarleikiHreint sakavottorðJákvæðniMannleg samskiptiMetnaðurSjálfstæð vinnubrögðStundvísiÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar



